Spilling er alltaf ógn við hagsmuni almennings

Oddný G. Harðardóttir hefur lagt fram þingsályktunartillögu sem felur í sér að gert verði ráð fyrir styrkveitingu til Íslandsdeildar Transparency International í fjárlögum fyrir árin 2023-2027. Samtökin vinna gegn spillingu í íslensku samfélagi.

Rannsóknir sýna með óyggjandi hætti að spilling er illvíg samfélagsleg meinsemd sem vegur að lýðræðinu, mannréttindum og réttarríkinu. Hún leiðir til mismununar, hamlar efnahagslegri þróun, skerðir lífskjör og eykur ójöfnuð. Spilling er alltaf ógn við hagsmuni almennings. Augljósir almannahagsmunir eru undir og mikilvægt að markvisst sé unnið gegn spillingu í íslensku samfélagi. Því er með tillögu þessari lagt til að fjármála- og efnahagsráðherra geri ráð fyrir fjármunum til Íslandsdeildar Transparency International svo að samtökin geti náð markmiðum sínum.

Lesa má þingsályktunartillöguna hér.