Börn skilin eftir
Þegar sveitarfélögin tóku við rekstri málaflokks fatlaðs fólks árið 2011 „gleymdist“ að gera ráð fyrir úrræðum fyrir börn með þroska- og geðraskanir og að það kostaði eitthvað að þjónusta þau. Sveitarfélög fengu því ekki til þess fjármagn. Þessi börn eru skilgreind sem hættuleg sjálfum sér og öðrum og þurfa stuðning og gæslu allan sólarhringinn. Það er ábyrgð samfélagsins að tryggja að þau fái það. Þau búa við mjög flókinn heilbrigðisvanda og þurfa þjónustu sem er samþætt félagslegri þjónustu, gagnreynd meðferðarúrræði, búsetu og gæslu allan sólarhringinn.
Farsæld fyrir öll börn?
Sveitarfélög hafa kallað eftir að heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin komi upp sérhæfðri þjónustu fyrir þessi börn auk barna og ungmenna í barnaverndarkerfinu sem glíma við margs konar tilfinninga- og hegðunarvanda. Það hefur enn ekki tekist og nú á loks að skipa starfshóp um málið. Á hverju ári eru um 30 börn í þessari stöðu á öllu landinu og fyrir utan að það er ekki hlutverk sveitarfélaga að byggja upp svo sérhæfð meðferðarúrræði þá er það ógerlegt að öll sveitarfélög geti komið sér upp svo sérhæfðri þekkingu.
Laumueinkavæðing
Þetta tómarúm hefur skilað því að heilbrigðis- og búsetuþjónusta fyrir þennan hóp hefur verið einkavædd án þess að það hafi nokkurs staðar verið ákveðið. Einkafyrirtæki hafa stigið inn og selja úrræðalausum sveitarfélögum þjónustu. Algengur kostnaður fyrir þjónustu við hvert barn er um 60 til 80 milljónir á ári. Nú ætla ég ekki að efast um að einkafyrirtæki rækti sitt hlutverk vel en það er ekki eðlilegt að skilja þessi börn eftir. Þau eru svipt þeirri heilbrigðisþjónustu sem þau eiga rétt á og skortur er á að byggð verði upp viðeigandi þekking og gagnreynd meðferð á vanda þessara barna.
Fyrir öll börn
Reykjavík er öflugasta sveitarfélagið í velferðarmálum og hvers kyns félagslegri uppbyggingu og þjónustu. Við höfum lagt áherslu á málefni barna á þessu kjörtímabili, erum að innleiða verkefnið „betri borg fyrir börn“ sem á að tryggja snemmtæka þjónustu á vettvangi barnanna og fjölskyldna þeirra. Við höfum eflt stuðnings- og stoðþjónustu, stuðningsfjölskyldur, skammtímavistun og barnaverndarmál hafa aldrei verið jafn mörg. Við erum að auglýsa eftir málstjórum og erum tilbúin að innleiða farsældarlög sem barnamálaráðherra hefur lagt áherslu á. Ef vel tekst til mun það koma í veg fyrir vanda fjölda barna og fjölskyldna. En þau börn sem þurfa sérhæfð úrræði þurfa að geta fengið þau, strax. Samfylkingin leggur áherslu á að málefni þessara barna verði tekin föstum tökum, íslenskt samfélag getur ekki innleitt farsældarlög barna og skilið veikustu börn Íslands eftir.
Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður velferðarráðs og ofbeldisvarnarnefndar