Jón Grétar nýr gjaldkeri Samfylkingarinnar
Jón Grétar Þórsson var kjörinn gjaldkeri Samfylkingarinnar- jafnaðarflokks Íslands á landsfundi Samfylkingarinnar 2022. Hann hlaut 49,64% greiddra atkvæða.
Jón Grétar Þórsson er fertugur Hafnfirðingur og formaður Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði frá 2016, fyrir formennsku gegndi hann hlutverki gjaldkeri félagsins. Hann er varabæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna í Hafnarfirði og hefur setið í hafnarstjórn fyrir hönd Samfylkingarinnar frá árinu 2018, þar á undan í menningar- og ferðamálanefnd. Jón Grétar sat í framkvæmdastjórn og miðstjórn Ungs jafnaðarfólks á árunum 2009 til 2014 og var formaður UJ í Hafnarfirði á árunum 2009 til 2014.
Í framboði voru Jón Grétar Þórsson og Stein Olav Romslo.