Kristrún Frostadóttir nýkjörin formaður Samfylkingarinnar

Landsfundur Samfylkingarinnar var settur í dag. Kristrún Frostadóttir var ein í framboði til formanns og hlaut 94,59 % greiddra atkvæða. Kjörið endurspeglar ánægju með nýkjörinn formann flokksins.

Kristrún Frostadóttir tekur við af Loga Einarssyni sem hefur verið formaður frá 2016 og er því þaulsetnasti formaður Samfylkingarinnar hingað til.

Kristrún er hagfræðingur að mennt og var oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður til alþingiskosninga haustið 2021 og tók sæti á Alþingi að kosningum loknum.