Kvennafrí

Heiða

Í dag eru 47 ár frá kvennafrídeginum þegar konur lögðu niður störf og kröfðust launajafnréttis.

Heiða Björg Hilmisdóttir Borgarfulltrúi og formaður Velferðaráðs Reykjavíkurborgar

Kvennafrídagurinn sýndi mátt kvennasamstöðunnar í verki. Kvennasamstaðan er magnað fyrirbæri sem hefur verið hreyfiafl mikilvægra samfélagsumbóta í þágu jafnréttis og mannréttinda. Engu að síður búa konur hér á landi enn við launamisrétti sem rekja má að mestu til kynskipts vinnumarkaðar og vanmats á virði kvennastarfa.

Hvernig gengur ?

Samkvæmt launarannsókn Hagstofunnar var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14,0% hjá ríkisstarfsmönnum og 7,4% meðal starfsfólks sveitarfélaga árið 2019. Það er óþolandi að nú hátt í 70 árum eftir lögfestingu launajafnréttis hér á landi sé staðan þessi.

Virði starfa

Beina þarf sjónum að virðismati starfa. Launajafnrétti næst ekki nema launasetning byggi á heildstæðu mati starfa þar sem litið er til þátta eins og ábyrgðar á fólki, tilfinningalegu álagi, vinnuumhverfi, og samkenndar til jafns við mannaforráð og ábyrgð á fjármálum. Þó að launajafnrétti á vettvangi sveitarfélaga hafi ekki verið náð skera sveitarfélög sig úr með næstum helmingi lægri launamun er aðrir markaðir.

Leið sveitarfélaga

Sérstaða sveitarfélaganna á sér án efa margvíslegar skýringar. Ein þeirra er vafalaust sú að frá aldamótum hafa sveitarfélögin beint sjónum að verðmætamati starfa og notast við starfsmatskerfi við mat á störfum. Í því felst að mat á virði starfa byggir á samræmdum viðmiðum sem leitast er við að feli ekki í sér kynjaskekkju Starfsmatskerfið nær aðeins til grunnlauna starfa og verk að vinna að vinna hvað varðar viðbótarlaunin. Um þessar myndir er aukin áhersla á virðismat starfa og er því full ástæða til að líta til reynslu sveitarfélaganna af notkun starfsmatskerfis í þeirri vegferð.

Launamisrétti þarf að uppræta því þessi félagslegi og efnahagslegi veruleiki kvenna hefur áhrif á lífsgæði og efnahagslega stöðu þeirra alla ævi. Við það verður ekki unað fyrr en fullt jafnrétti næst.

Til hamingju með daginn!

Greinin birtist á visi.is 24. okt. 2022.