Fram­sækni eða fælni

Guðmundur Árni, hafnarfjörður,

20 tillögur sem til bóta horfa fyrir bæjarbúa í Hafnarfirði voru fluttar af jafnaðarmönnum á fundi bæjarstjórnar 7.desember síðastliðinn.

Guðmundur Árni, Hafnarfjörður,
Guðmundur Árni Stefánsson Varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti í Hafnarfirði

Þær voru allar felldar! Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn máttu ekki til þess hugsa að samþykkja eina einustu þeirra, jafnvel þótt margar þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni; úr meirihlutasáttmála þessara flokka, sem þeir kynntu í vor! En af því að Samfylkingin lagði þetta til, þá var ekki hægt að samþykkja neitt - ekki eina tillögu!

Jafnaðarmenn lögðu til að samþætta heimilishjálp og heimahjúkrun í Hafnarfirði. Það felldu sjálfstæðismenn og framsókn.

Jafnarfólk lagði til að þrýsta á ríkisvaldið um byggingu nýrrar heilsugæslu. Og byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hamranesi fyrir eldri borgara sem þurfa umönnum. Mál sem hafa verið á dagskrá árum saman, en ekkert miðar. Báðum þessum brýnu ogmikilvægu málum var hafnað.

Fella eigin tillögur

Hér skulu nefnd nokkur dæmi um mál sem meirihlutinn hafnaði á bæjarstjórnarfundinum:Það má ekki fjölga félagslegum íbúðum í Hafnarfirði, þrátt fyrir gríðarlega langan biðlista og brýna þörf.

Það er ekki á dagskrá að bjóða íslenskukennslu á vegum Hafnarfjarðarbæjar fyrir íbúa bæjarins, sem eru af erlendu bergi brotnir. Það má ekki tryggja húsnæði fyrir Leikfélag Hafnarfjarðar.

Það á ekki að leysa húsnæðisvanda Brettafélagsins. Né Dansíþróttafélagsins. Það má ekki hækka frístundastyrk til barna og ungmenna. Því er hafnað að bjóða upp á frítt í strætó fyrir unglinga á aldrinum 12-15 ára. Það var fellt að styrkja starfsemi Markaðsskrifstofu Hafnarfjarða. Það skal ekki gera betur í að lagfæra

grunn- og leikskólalóðir. Því er neitað að gera átak í aðgengismálum fyrir fatlað fólk og auka umferðaröryggi við gangbrautir bæjarins. Og alls ekki skal farið í viðræður við ófaglært starfsfólk leikskólanna um kjarajöfnun gagnvart öðrum sveitarfélögum.

Og þessar tillögur og fleiri voru ekki kostnaðarsamar, enda var gert ráð fyrir tekjum á móti í fjórum sjálfstæðum tekjutillögum jafnaðarmanna - sem voru auðvitað líka felldar. Raunar voru tekjutillögur jafnaðarmanna langt umfram kostnað við úrbæturnar.

Ótti eða kjarkur

Þessi gamaldags póltík valdhafa í meirihluta Hafnarfjarðar eru lýsandi dæmi um pólitískt kjörna valdhafa, sem eru hræddir og óvissir um stöðu sína. Það er ekki sama hvaðan gott kemur. Ef það kemur frá fjórum bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar - jafnaðarflokks Íslands, þá skal andæfa og hafna.

Það er sumpart skiljanlegt að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks séu óöruggir og óvissir og viti ekki gjörla hvað skal til bragðs taka. Þeir sjá það og skilja að eftir meira en 8 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins - lengst af í samstarfi við Framsóknarflokkinn, þá hefur þjónustu bæjarins hrakað - um leið og fjárhagsstaða bæjarins er afar viðkvæm. Þar má ekkert út af bregða.

Rekstrarhalli er viðvarandi, enda þótt skuldir aukist ár frá ári. Og jafnvel líka þótt fasteignaskattar séu hækkað um tugi prósenta.

Jafnaðarmenn vilja sjá sterkan Hafnarfjörð þar sem bjartsýni, velferð og velsæld ríkir meðal bæjarbúa. Þar sem allir eiga kost á öflugri grunnþjónustu óháð efnahag og framsækið atvinnulíf er ríkjandi. Það vantar mikið upp á að þessi grunngildi séu í heiðri höfð. Þetta er spurning um stjórnarhætti sem einkennast af framsækni eða fælni og ótta við núið og framtíðina. Það þarf einfaldlega jafnaðarmenn til forystu í Firðinum.

Greinin birtist á visi.is 8.desember 2022.