Meirihlutinn vill ekki íslenskukennslu í Hafnarfirði

Árni Rúnar, hafnarfjörður,

Fjölmenningarráð Hafnarfjarðar hefur bent á að mjög mikill skortur er á íslenskukennslu í Hafnarfirði.

Árni Rúnar, Hafnarfjörður, kosningar, 2022
Árni Rúnar Þorvaldsson Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Í fundargerð síðasta fundar ráðsins kemur fram engin íslenskukennsla fari lengur fram í Námsflokkum Hafnarfjarðar og að ekki sé hægt að stunda nám í íslensku í bænum. Eina undantekningin er að Ástjarnarkirkja sé stundum með námskeið. Fjölmenningarráð bendir einnig á að erfitt og dýrt sé fyrir fólk að sækja námskeið til Reykjavíkur og að brýnt sé að fólki sé gert kleift að stunda íslenskunám á vinnutíma. 

Tungumálið lykillinn að samfélaginu 

Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, fræðsluráði og fjölskylduráði hafa á undanförnum mánuðum barist fyrir því að þessi mál verði tekin fastari tökum hjá Hafnarfjarðarbæ. Við teljum að mikil þörf sé til staðar fyrir íslenskukennslu og að bæjarfélagið hafi skyldum að gegna í þessu sambandi. Tungumálið er lykillinn að samfélagslegri þátttöku og við eigum gera fólki sem býr hér og er ekki með íslensku sem móðurmál eins hægt um vik og mögulegt er til þess að læra íslensku – og það á helst að gerast því að kostnaðarlausu og á vinnutíma. 

Áhugaleysið staðfest í bæjarstjórn

Í ljósi orða fjölmenningarráðs lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar til að á næsta ári yrðu settar 30 milljónir í íslenskukennslu á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Þeirrar tillögu biðu sömu örlög og annarra tillagna okkar jafnaðarfólks – fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, meirihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, höfnuðu henni. Áhugaleysi meirihlutaflokkanna á á þessu mikilvæga máli þar með endanlega staðfest í bæjarstjórn – því miður.