Réttu megin við strikið

Oddný banner

Við í Samfylkingunni sjáum, ólíkt ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum, að nauðsynlegt er að huga sérstaklega að stöðu heimila þegar verðbólga er í sögulegu hámarki.

Oddný,
Oddný G. Harðardóttir Alþingismaður

Áhrifin á heimilisbókhaldið eru mest hjá millitekjuhópunum og fólki á lægstu laununum.

Við eigum að læra af hinum norrænu ríkjunum, líta til norrænna velferðarsamfélaga eftir fyrirmyndum til að jafna leikinn. Þar er húsnæðisstuðningur og stuðningur við barnafjölskyldur mun öflugri en hér og svínvirkar. Við viljum að jöfnunarkerfin okkar virki jafn vel og þar og þess vegna leggjum við til að fjárlagafrumvarpinu verði breytt í þeim anda.

Leigjendur

Húsnæðisbætur til leigjenda með lágar tekjur hafa ekki fylgt hækkun á húsaleigu undanfarin ár enda stóðu bæturnar í stað frá árinu 2017 og fram á mitt þetta ár. Þá voru húsnæðibætur hækkaðar um 10%, en leiguverð hefur hækkað að meðaltali um 35% frá árinu 2017. Samfylkingin leggur til að bæturnar verði hækkaðar um 10% strax um áramótin, til viðbótar hækkuninni frá því í sumar. Við höfum auk þess nú þegar lagt til á Alþingi að komið verði á leigubremsu á leigumarkaði líkt og verkalýðshreyfingin hefur ítrekað kallað eftir og ríkisstjórnin lofað en svikið.

Eigendur

Vaxtabótakerið hefur markvisst verið veikt frá árinu 2014 og nú er svo komið að það þjónar ekki tilgangi sínum. Við teljum afar mikilvægt á tímum verðbólgu og vaxtahækkana að skerðingarmörk vegna eigna í vaxtabótakerfinu verði hækkuð í samræmi við hækkun íbúðaverðs sem orðið hefur undanfarin ár. Hækkunin gengi að mestu til þeirra sem búa einir og einstæðra foreldra með lágar tekjur. Það er að segja til þeirra sem verða ekki fyrir miklum skerðingum vegna tekna en eiga eign sem er nálægt efri mörkum eignaskerðingarinnar.

Barnafjölskyldur

Það er ekkert nýtt að Samfylkingin tali fyrir stuðningi við barnafjölskyldur en nú hljóta allir að fallast á nauðsyn þess að beita barnabótakerfinu markvisst vegna hækkunar á nauðsynjavörum nú um stundir. Ísland hefur lengi verið eftirbátur hinna norrænu ríkjanna þegar kemur að greiðslum vegna framfærslu barna.

Barnabætur dragast saman að raunvirði milli áranna 2022 og 2023 ef núverandi fjárlagafrumvarp verður samþykkt óbreytt. Bæturnar byrja að skerðast við lægstu laun. Við viljum hækka fjárhæð með hverju barni og sjá til þess að greiðslurnar nái til fleiri fjölskyldna en þær gera í dag.

Verði þessar tillögur Samfylkingarinnar samþykktar munu þær verja heimili og barnafjölskyldur landsins í núverandi efnahagsástandi. Við vitum og þekkjum vel hvernig þessi jöfnunartæki virka og við munum fylgja þessum raunhæfu tillögum fast á eftir í þinginu.

Greinin birtist á visi.is 8. desember 2022.