Bannað að spyrja um eigna­sölu Bjarna

Jóhann, jói

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokks hafa nú beitt meirihlutavaldi á Alþingi til að banna mér að spyrja forseta Alþingis um greinargerð sem fjallar um sölu Bjarna Benediktssonar á tugmilljarða eignum ríkisins í gegnum einkahlutafélagið Lindarhvol ehf.

Jói, Jóhann Páll, þingflokkur
Jóhann Páll Jóhannsson Alþingismaður

Greinargerðin var afhent Alþingi árið 2018 og forsætisnefnd hefur tekið sérstaka ákvörðun um að birta hana. Engu að síður situr forseti Alþingis á skjalinu og neitar að afhenda það eða upplýsa hvað kemur þar fram.

Fyrirspurn minni var synjað á þeim forsendum að hún varðaði ekki „stjórnsýslu á vegum þingsins“, sbr. 3. mgr. 8. gr. þingskapalaga um fyrirspurnir til forseta. Það er rangt af þremur ástæðum:

  • Í fyrsta lagi er greinargerðin miðpunkturinn í sérstöku stjórnsýslumáli hjá forsætisnefnd sem margsinnis hefur verið fjallað um á fundum nefndarinnar og í bréfum forseta til stjórnvalda.
  • Í öðru lagi liggur fyrir að forsætisnefnd hefur þegar tekið ákvörðun um að veittur skuli aðgangur að skjalinu á grundvelli upplýsingalaga með vísan til þess að gildissvið þeirra taki til stjórnsýslu Alþingis. Sú ákvörðun forsætisnefndar getur ekki byggt á öðru en að skjalið sjálft tilheyri stjórnsýslu Alþingis.
  • Í þriðja lagi kemur orðrétt fram í bréfi sem þáverandi forseti Alþingis sendi stjórn Lindarhvols ehf. 4. júní 2021 að málið væri „til skoðunar hjá forsætisnefnd Alþingis á þeim grundvelli að skjalið sé hluti af stjórnsýslu þess“. Þannig hefur forsætisnefnd sjálf haft skjalið til meðferðar á þeim forsendum að það sé beinlínis hluti af stjórnsýslu Alþingis.

Að framansögðu má vera ljóst að fyrirspurnin uppfyllir skilyrði þingskapalaga. Synjun forseta á henni er ólögmæt og afgreiðsla meirihlutans á Alþingi gerræðisleg og setur hættulegt fordæmi.

Greinargerðin sem ég spyr um var unnin af embættismanni Alþingis í umboði almennings, fyrir fjármuni almennings og fjallar um sölu á eignum almennings.

Eftir stendur spurningin: hvað er það sem almenningur má ekki sjá?

Greinin birtist í visi.is 7. mars 2023.