Rannsóknarnefndar Alþingis er þörf

Þórunn,  kraginn, banner,

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur lokið umfjöllun sinni um skýrslu Ríkisendurskoðanda um sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars 2022.

Þórunn Sveinbjarnardóttir Forseti Alþingis

Í gær fór fram umræða á Alþingi um niðurstöður nefndarinnar sem klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Eftir ítarlega umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar komst minnihluti nefndarinnar að þeirri niðurstöðu að framkvæmd sölunnar sé ekki fullrannsökuð og að Alþingi beri að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að ljúka rannsókn málsins. Ljóst er að það hvernig staðið var að sölunni gróf verulega undan trausti almennings á fjármálakerfinu og ekki síður stjórnmálunum en forsætisráðherra allt frá því hún tók við embætti lagt áherslu á eflingu trausts á stjórnmálunum. Í skýrslu Ríkisendurskoðanda kemur skýrt fram að það falli utan hlutverks Ríkisendurskoðunar að taka afstöðu til ágreiningsefna um lagatúlkun og að embættinu beri að gæta varúðar við að álykta almennt um túlkun og skýringu laga, enda sé öðrum aðilum falið það hlutverk að lögum.

Að mínu mati er málið í eðli sínu einfalt. Rannsókn bankasölunnar er ekki lokið og grundvallaratriði að fá svör við því hvort störf fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við söluna hafi verið í samræmi við stjórnsýslulega ábyrgð hans sem og ábyrgð hans samkvæmt lögum nr. 155/2012 um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Áframhaldandi sala á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka getur ekki farið fram fyrr en niðurstaða um þetta liggur fyrir. Þetta ættum við öll að geta verið sammála um. Hafi þingmenn Framsóknarflokksins og  Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs snefil af áhuga á því að auka og styrkja traust almennings á stjórnmálunum fallast þeir á málatilbúnað minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um að skipuð verði rannsóknarnefnd Alþingis til að rannsaka hvort undirbúningur og framkvæmd sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 hafi verið í samræmi við lög. Traust almennings til stjórnmálanna og bankakerfisins er undir.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 1. mars 2023.