Stjórnmálalyktun flokksstjórnarfundar

Samfylkingin – Jafnaðarflokkur Íslands sendir út ákall til fólks með jafnaðartaug um land allt: Nú er rétti tíminn til að koma með og mæta til leiks. Við höfum dýrmætan tíma fram að næstu kosningum til Alþingis sem við hyggjumst nýta til fulls.
Samfylkingin hefur hafið undirbúning og verður klár þegar kallið kemur; ekki bara fyrir kosningar og myndun nýrrar ríkisstjórnar heldur fyrir þau risastóru verkefni sem þá munu blasa við okkur.
Samfylkingin stefnir í ríkisstjórn
Samfylkingin stefnir í ríkisstjórn og fyrir því er aðeins ein ástæða: Verkefnin sem kalla. Eftir óslitinn áratug af hægristefnu í efnahags- og velferðarmálum blasa hvarvetna við okkur verkefni sem kalla á klassískar lausnir jafnaðarfólks og sem kalla á okkur sósíaldemókrata til verka.
Við viljum að fólk geti lifað sómasamlegu lífi af laununum sínum, búið við öryggi á húsnæðismarkaði og sótt sér heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki þegar eitthvað kemur upp á.
Höfuðverkefni næstu ára verður að endurreisa velferðarkerfið á Íslandi eftir áratug hnignunar. Það er okkar pólitíska sannfæring og lykillinn að því að ná aftur stjórn á þróun efnahagsmála, verðbólgu og vöxtum, í breiðri sátt við verkalýðshreyfingu og atvinnulíf.
Ríkisstjórnin hefur misst alla stjórn
Ríkisstjórnin hefur misst alla stjórn. Ríkisstjórnin hefur misst stjórn á verðbólgunni og vöxtunum og hafði fyrir löngu misst stjórn á velferðarkerfinu og húsnæðismálunum. Það er ástæða þeirrar miklu ólgu sem brotist hefur út í átökum á vinnumarkaði.
Forystufólk ríkisstjórarinnar bendir bara á aðra og tekur enga ábyrgð. Samfylkingin hefur hins vegar kynnt kjarapakka til að mæta ástandinu sem heldur enn gildi sínu. Grunnhugmynd kjarapakkans var einföld: Að taka á þenslunni þar sem þenslan er í raun og veru — eftir metár í fjármagnstekjum, metarðsemi hjá stórútgerð og methagnað hjá bönkunum.
Þá hefur flokkurinn lagt til tímabundna leigubremsu að danskri fyrirmynd og verið algjörlega samstíga með verkalýðshreyfingunni í því máli. Við höfum haldið uppi einbeittum málflutningi á Alþingi og munum áfram þrýsta á þessar aðgerðir til að vinna gegn verðbólgunni og um leið verja heimilisbókhaldið. Með því að leggja fram raunhæfar lausnir sýnum við ábyrgð og sýnum á sama tíma fólkinu í landinu hvernig Samfylkingin mun stjórna