Dagbjört Hákonardóttir tók sæti á Alþingi

Dagbjört Hákonardóttir tók sæti í dag á Alþingi fyrir Samfylkinguna í stað Helgu Völu Helgadóttur.

Dagbjört hefur áður komið á þing sem varaþingmaður en Dagbjört var í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í Alþingiskosningunum 2021. Hún tekur sæti í allsherjar- og menntamálanefnd sem aðalmaður og í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem varamaður.

 „Nú sem aldrei fyrr kallar fólk eftir áherslum félagshyggjunnar við stjórn landsins. Ég geng stolt til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar og hlakka til að leggja mitt af mörkum við að tala röddu frjálslyndrar jafnaðarstefnu á Alþingi. Við leysum úr áskorunum í fjölskyldumálum með femíniskar áherslur að leiðarljósi, sem og á komandi kjaravetri. Alþingi þarf að styðja við samgöngubyltinguna og mannvænt skipulag með virkum samgönguháttum. Ég hef miklar væntingar til þingvetrarins, enda verk að vinna,“ segir Dagbjört.

Dagbjört er lögfræðingur og var persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar árin 2018-2023. Dagbjört hefur lengi verið virk í Samfylkingunni en hún sat meðal annars í stjórn Ungs jafnaðarfólks 2003-2006. Þá var hún formaður Ungra Evrópusinna árið 2011-2013 og er nú formaður FFJ félags frjálslyndra jafnaðarmanna