Kristrún kynnir kjarapakka Samfylkingar

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands, kynnti í dag kjarapakka flokksins í tengslum við fjárlög og komandi kjarasamninga.

Kynnið ykkur Kjarapakka Samfylkingar í heild sinni hér

„Nú verður að milda höggið fyrir heimilin. Samfylkingin vill aðhald þar sem þenslan er í raun. Það er lykillinn að því að vinna bug á verðbólgunni,“ segir Kristrún í tilkynningu til fjölmiðla.

„Á tímum hárra vaxta og verðbólgu er ótrúlegt að ríkisstjórnin sé að minnka stuðning við skuldsett heimili og leigjendur. Samfylkingin vill fara aðra leið. Þess vegna kynnum við í dag kjarapakka sem gengur út á að vinna bug á  verðbólgunni — með aðhaldi þar sem þenslan er í raun og veru — og um leið að milda höggið fyrir heimilin.“

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum verður 5.000 heimilum hent út úr vaxtabótakerfinu ef fjárlög ríkisstjórnarinnar verða samþykkt óbreytt. Sömuleiðis lækka fjárheimildir fyrir húsnæðisbætur til leigjenda á milli ára.

Tillögur kjarapakkans falla undir tvo flokka sem bera yfirskriftina „Mildum höggið fyrir heimilin“ og  „Vinnum bug á verðbólgunni“. Fyrir utan stuðning við skuldsett heimili er þar meðal annars að finna vaxtabætur fyrir bændur og aðgerðir til að auka húsnæðisöryggi — svo sem með því að ná stjórn á Airbnb, tímabundinni leigubremsu að danskri fyrirmynd og ívilnun til uppbyggingar almennra íbúða.

Loks eru í kjarapakkanum tillögur um 24 milljarða aðhald á tekjuhlið ríkissjóðs — en þar af er gert ráð fyrir 6 milljörðum til að fjármagna aðgerðir vegna ástandsins í Grindavík, svo sem afkomutryggingu og leigustuðning. Tekjutillögurnar eru óbreyttar frá þeim kjarapakka sem Samfylkingin kynnti fyrir fjárlög og kjarasamninga í desember í fyrra.