Takk fyrir mig! - Dagur kveður

Dagur B. Eggertsson lét af störfum sem borgarstjóri þann 16. janúar eftir að hafa gegnt embættinu samfellt í 3500 daga.

Af því tilefni ætlar Dagur að bjóða til þakkarhátíðar, laugardaginn 20. janúar, fyrir samferðarfólk, samstarfsfólk, stuðningsfólk, vini og ættingja.

Viðburðurinn fer fram í Borgarleikhúsinu klukkan 15:00. Húsið opnar kl. 14.30 og að lokinni stuttri dagskrá gefst tækifæri til þess að skála saman í forsalnum.

Vinsamlegast skráið mætingu hér https://tix.is/is/bl/specialoffer/johnv3i4g2g4s/.