Rós Samfylkingarinnar vann gullið hjá Félagi íslenskra teiknara

„Við viljum að allir Íslendingar viti fyrir hvað þessi rós stendur,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í tilefni af sigri rósarinnar.

Samfylkingin vann gullverðlaun í flokknum Firmamerki á FÍT-verðlaununum sem veitt voru síðastliðinn föstudag. Þá vann Samfylkingin jafnframt til silfurverðlauna í flokknum Mörkun fyrirtækja. Nýtt merki og nýtt útlit flokksins var tekið í notkun í mars á síðasta ári og hannað af Sigurði Oddssyni sem er grafískur hönnuður og hönnunarstjóri í New York. 

Í umsögn dómnefndar segir að merki Samfylkingarinnar sé „nútímaleg útfærsla á alþjóðlegu tákni í teiknistíl sem er eftirtektarverður“. Iceland Innovation Week og Orka hlutu silfurverðlaun fyrir sín merki en engin gullverðlaun voru veitt í flokknum Mörkun fyrirtækja.

„Rósin skiptir okkur máli“

„Þetta skiptir okkur máli. Rósin skiptir okkur máli og við viljum að allir Íslendingar viti fyrir hvað þessi rós stendur. Það er mikilvægt fyrir Samfylkinguna að halda sterkri tengingu við yfir hundrað ára sögu og sigurgöngu jafnaðarstefnunnar, sem hefur getið af sér farsælustu samfélög í heiminum. Við óskum Sigurði Oddssyni hjartanlega til hamingju með þessa viðurkenningu og þökkum honum fyrir einstaklega vel unnið verk og gott samstarf,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í tilefni af sigri rósarinnar.

Tillaga um nýtt merki sem væri rauð rós, alþjóðlegt tákn sósíaldemókrata, var lögð fram af formanni stjórnar verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar og samþykkt á landsfundi flokksins haustið 2022 þegar Kristrún var kjörin formaður. Nýja merkið var svo afhjúpað ásamt nýju útliti á flokksstjórnarfundi í Hafnarfirði vorið 2023.

Við kynningu merkisins kom fram að rauða rósin ætti sér langa sögu sem tákn fyrir andóf gegn kúgun og gerræði. Sagt hefur verið að rauði liturinn tákni baráttuna gegn veraldlegri fátækt en að rósin sjálf sé tákn fyrir baráttu gegn andlegri fátækt.