Framboðslisti Samfylkingar í Reykjavík suður

Framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 voru samþykktir á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík. Fundurinn var haldinn í félagsheimili Þróttar í Laugardal.

Í Reykjavíkurkjördæmi suður er Jóhann Páll Jóhannsson í forystusæti listans. Ragna Sigurðardóttir læknir er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Kristján Þórður Snæbjörnson formaður Rafiðnaðarsambandsins og fjórða sætið skipar Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins.

Heiðurssætið skipar Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.

Jóhann Páll: Við erum með plan og nýjan verkstjóra
„Það sem við höfum fram yfir marga flokka er að við erum með plan. Við erum með plan í heilbrigðismálum, við erum með plan um það hvernig við ætlum að byggja upp innviði og auka verðmætasköpun á Íslandi, og við erum með plan um það hvernig við ætlum að berja niður verðbólguna og vextina og koma stjórn á húsnæðismarkaðinn, með bráðaaðgerðum og kerfisbreytingum til langs tíma og þessar aðgerðir eru fjármagnaðar upp á punkt og prik.

Allt þetta höfum við kynnt í útspilum Samfylkingar síðustu tvö árin. Og næsta þriðjudag kynnum við útspil okkar í húsnæðis- og kjaramálum sem við höfum unnið að með fólkinu í landinu frá því síðasta vor,“ sagði Jóhann Páll, oddviti listans, í ræðu sinni á fundinum í Þróttaraheimilinu.

„Við erum ekki að bjóða okkur fram til að garga og góla á Alþingi, við erum að bjóða okkur fram til að stjórna og sitja í ríkisstjórn. Og við ætlum ekki að fara þarna inn til að láta einhverja starfshópa malla árum saman eða til að láta embættismenn segja okkur fyrir verkum. Við förum inn til að stjórna, og við bjóðum fram nýjan verkstjóra sem er Kristrún Frostadóttir.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður:
1. Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður
2. Ragna Sigurðardóttir, læknir
3. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins
4. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins
5. Vilborg Kristín Oddsdóttir, félagsráðgjafi
6. Birgir Þórarinsson, tónlistamaður
7. Auður Alfa Ólafsdóttir, Sérfræðingur hjá ASÍ
8. Tomasz Paweł Chrapek, tölvunarverkfræðingur
9. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu
10. Áslaug Ýr Hjartardóttir, ritlistarnemi
11. Halldór Jóhann Sigfússon, handknattleiksþjálfari
12. Anna Sigrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur
13. Arnór Benónýsson, leiðbeinandi
14. Birgitta Ásbjörnsdóttir, háskólanemi
15. Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar Sjúkrahússins á Akureyri
16. Anna Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evris
17. Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og tónlistarmaður
18. Agla Arnars Katrínardóttir, stærðfræðinemi
19. Ásgeir Beinteinsson, fyrr. skólastjóri
20. Aðalheiður Frantzdóttir, ellilífeyrisþegi
21. Mörður Árnason, fyrrv. alþingismaður
22. Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrv. forsætisráðherra