Stöndum með ein­yrkjum og sjálf­stætt starfandi

Við sem samfélag þurfum að taka höndum saman og verja réttindi og kjör einyrkja og sjálfstætt starfandi.

Kristján Þórður Snæbjarnarson Iðnaðarmaður og 3. sæti í Reykjavík suður

Staða þess hóps getur verið mjög misjöfn en í mjög mörgum tilfellum er gengið á réttindi þeirra. Einyrkjar og sjálfstætt starfandi sem starfa mikið fyrir stór fyrirtæki eða stofnanir geta oft illa varist sterkri samningsstöðu stóru aðilanna, geta ekki verðlagt sig eftir eigin verðleikum og hafa oftar en ekki litla stjórn á sínum vinnutíma og aðstæðum. Stjórnmálamenn þurfa því að huga sérstaklega að kjörum og aðstæðum þeirra og við í Samfylkingunni höfnum hvers kyns hugmyndum um að einyrkjar og sjálfstætt starfandi séu skattlagðir umfram aðra hópa.

Kvikmyndageirinn skiptir landið miklu máli enda mikil verðmætasköpun sem þar fer fram. Við höfum upp á fjölmargt að bjóða sem gerir okkur eftirsótt. Þá er það ekki bara okkar fallega land heldur eru það sérfræðingarnir, kvikmyndagerðarfólkið, sem hafa framúrskarandi hæfileika sem er langstærsti þátturinn sem erlend stórfyrirtæki sækja í. Okkur ber að tryggja þessu frábæra fólki viðunandi starfsaðstæður og starfskjör.

Gigg- eða deilihagkerfið hefur sína kosti og galla. Það getur verið eftirsóknarvert að taka upp nýjar aðferðir við atvinnusköpun en sporin hræða. Það er mjög brýnt að tryggja hagsmuni fólksins þegar nýjungar eru teknar upp. Hver tryggir fólki veikindaréttinn þegar þú ert verkefnaráðinn? Hver er uppsagnarfresturinn þinn? Færðu fæðingarorlof og hvernig er með sumarorlofið þitt? Því miður er neikvæða hlið deilihagkerfisins sú að þessir grundvallarþættir eru oft hunsaðir og hreinlega tapast. Það viljum við ekki. Við sem norrænt velferðarsamfélag eigum að styðja hvert annað þegar á reynir.

Hvað þarf að gera til að verja stöðu einyrkja og sjálfstætt starfandi?

Það þarf að tryggja að ákvæði kjarasamninga verkalýðsfélaga séu virt í einu og öllu og að tekið sé tillit til þeirra réttinda sem kjarasamningar kveða á um. Við þurfum að tryggja að sterkir aðilar geti ekki haft hamlandi áhrif á samkeppni á íslenskum vinnumarkaði. Þá verður að tryggja að samkeppnislög séu virt en ekki á kostnað launafólks, einyrkja eða sjálfstætt starfandi. Styrkja þarf verulega Samkeppniseftirlitið enda er það megin forsenda þess að mögulegt sé að bregðast við grunsemdum um brot á samkeppnislögum að eftirlitið hafi fjármagn og mannafla til að beita sér í þeim málum. Raunin er hins vegar sú að Samkeppniseftirlitið hefur verið fjársvelt á undanförnum árum. Tryggja þarf að einyrkjar og sjálfstætt starfandi einstaklingar geti leitað til aðila sem geta veitt stuðning þegar grunur er um að á þeim sé brotið. Félagsleg undirboð verður að stöðva hvar sem þau er að finna. Stöndum vörð um réttindi fólksins!

Höfundur er formaður RSÍ, fyrrv. forseti ASÍ og frambjóðandi Samfylkingarinnar í komandi alþingiskosningum.