Varúð til hægri!

Þórunn Sveinbjarnardóttir Alþingismaður

Samfylkingin á erindi við þig, kjósandi góður. Í dag hefur þú valdið til að nýta lýðræðisleg réttindi þín til að breyta Íslandi til hins betra. Nú er sögulegt tækifæri til að kjósa nýja ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands. En það er nauðsynlegt að sýna varúð til hægri.

Undir forystu Kristrúnar Frostadóttur hefur Samfylkingin kynnt þrjú veigamikil útspil í kosningabaráttunni. Stefnumál og markmið sem við höfum sett okkur í þéttu samráði við fólkið í landinu og málefnastarfi innan flokksins. Við lofum ekki töfralausnum og erum alveg heiðarleg með að við þurfum tvö kjörtímabil til að marka Íslandi nýja og betri framtíð.

Örugg skref á öllum sviðum

Samfylkingin ætlar að setja heilbrigðisþjónustu og málefni aldraðra í hæsta forgang með því að taka örugg skref að betra og öruggara aðgengi að heilbrigðiskerfinu og vinna upp halann sem myndast hefur í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það hefur reynst kostnaðarsöm vanræksla. Hvert einasta mannsbarn á Íslandi þarf að fá fastan heimilislækni. Það eitt eykur öryggi og lækkar kostnað í heilbrigðiskerfinu. Nú hefur aðeins helmingur landsmanna aðgang að föstum heimilislækni. Þetta viljum við laga á tveim kjörtímabilum.

Samfylkingin gerir kröfu um árangur í samgöngu- og atvinnumálum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um innviðskuldina sem bíður okkar í samgöngum um allt land. Mestu fólksfjölgun í Evrópu og rúmlega tvær milljónir ferðamanna á ári hafa reynt á samgöngukerfið svo um munar. Fjárfesting í samgöngum þarf að hækka um helming og nema 1% af vergri landsframleiðslu. Við viljum líka ljúka uppbyggingu betri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Þó fyrr hefði verið.

Samfylkingin vill ráðast í bráðaðagerðir svo að stærri hluti íbúðarhúsnæðis nýtist sem heimili fólks fremur en fjárfestingarvara hinna efnameiri. Við viljum ná stjórn á Airbnb, herða eftirlit og takmarka heimagistingu við lögheimili eða sumarbústað. En 90 daga reglan verður að sjálfsögðu áfram í gildi. Við leggjum til að gististarfsemi í atvinnuskyni verði aðeins í samþykktu atvinnuhúsnæði en ekki íbúðarhúsnæði, óháð því hvenær rekstrarleyfi var gefið út. Samfylkingin stendur með ungu fólki og vinnandi fjölskyldum og nauðsyn þess að auðvelda þeim að koma sér þaki yfir höfuðið.

Tryggjum breytingar

Til grundvallar allri okkar pólitík liggur jafnaðarstefnan og hugsjónir hennar um algild mannréttindi og frelsi einstaklingins í samfélagi þar sem öll njóta velferðar og öryggis án tillits til stöðu. Í samfélagi þar sem atvinnugreinar blómstra í heilbrigðri samkeppni og gætt er að fjölbreyttri nýsköpun og framþróun okkur öllum til heilla.

Kjósum Samfylkinguna fyrir nýtt upphaf á Íslandi!