Verklausi milljónakennarinn

Opinber umfjöllun um kennarastarfið einkennist þessa dagana mest af sleggjudómum og fáfræði.

Þórunn Sveinbjarnardóttir Alþingismaður og 3. sæti í Kraganum

Svo virðist sem stjórnmálamenn telji það sér til tekna að tala niður störf kennara og fólkið sem gegnir þeim. Verklaust fólk sem gerir kröfu um milljón krónur á mánuði! Kennarar hafa að sjálfsögðu svarað fyrir sig í fjölmiðlum en það er dapurlegt að verða svona rækilega vör við virðingarleysið sem grasserar í garð kennarastéttanna, allt frá leikskóla upp í framhaldsskóla.

Eitt af því sem KÍ hefur bent á er krafan um jöfnun launa á milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins en þá er miðað við sambærileg kjör háskólamenntaðs fólks á almenna vinnumarkaðnum. Sú krafa byggir á samkomulagi um lífeyriskerfi opinberra starfsmanna frá árinu 2016. Það gerðu fjármálaráðuneytið fyrir hönd ríkisins, Sambandið fyrir hönd sveitarfélaganna, BSRB, BHM og Kennarasambandið. Með samkomulagi voru lífeyriskjör jöfnuð á milli markaða en ríki og sveitarfélög skuldbundu sig til að jafna launamuninn á milli þessara sömu markaða. Það hefur enn ekki verið gert átta árum síðar.

Góð vinkona mín, sem er grunnskólakennari með 35 ára starfsreynslu, deildi launaseðlinum sínum með mér á dögunum. Hún er umsjónarkennari í 1. bekk grunnskóla. Heildarlaun hennar fyrir fulla vinnu eru 758.048 krónur á mánuði. Hvorki meira né minna. Strípað þingfararkaup er 1.459.841 króna á mánuði. Ég leyfi lesendum að leggja mat á það hvor okkar sé verðugri launanna.

Sem þingkona og fyrrverandi forystukona bandalags stéttarfélaga geri ég mér fulla grein fyrir því að launahækkanir eru sjaldnast teknar í stórum stökkum en aðilar vinnumarkaðarins og viðsemjendur kennara geta ekki hunsað kröfur kennara um jöfnun launa á milli markaða. Þeim þarf að svara og þær þarf að ræða við samningsborðið. Í þetta sinn búa opinberir starfsmenn meira að segja svo vel að félagar þeirra innan ASÍ sýn kröfunum skilning og stuðning. Það veit á gott, því að aðilar vinnumarkaðarins geta, ef þeir vilja, verið samtaka um að bæta laun og kjör kennara á Íslandi.

Greinin birtist á visi.is fyrr í mánuðinum.