Róttækni kristninnar
Donald Trump sór embættiseið sem 47. forseti Bandaríkja Norður-Ameríku í upphafi vikunnar.
Rétt eins og á Íslandi fylgir það valdaskiptum vestan hafs að ganga til kirkju og hlýða á predikun. Það kom í hlut Mariann Edgar Budde biskups í Biskupakirkjunni í Washington-borg að messa yfir nýjum forseta. Ég þekki ekki muninn á hinum ýmsu kirkjudeildum Bandaríkjanna en tel mig þó vita að biskupakirkjan sé í mörgu framsækin. Það kom einnig á daginn.
Mariann Edgar Budde talaði beint til forsetans með hætti sem margir eiga ekki að venjast. Hún bað Trump að sýna minnihlutahópum eins og ólöglegum innflytjendum og transfólki miskunn. Hún orðaði óttann sem börn innflytjenda, fædd í Bandaríkjunum, búa nú við í ljósi nýrra forsetatilskipana um þvingaða brottför milljóna manna. Biskupinn skar beint inn að kjarna málsins og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Trump skipti litum á fremsta kirkjubekk og vatt sér beint í að úthúða biskupnum á samfélagsmiðlum þegar hann komst í símann. Edgar Budde sýndi hugrekki með orðum sínum og varpaði um leið ljósi á hinn róttæka boðskap kristninnar; að öll séum við jöfn fyrir guði. Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, fjallaði um predikunina í færslu og sagði meðal annars: „Hlutverk kristinnar kirkju er að standa með þeim sem verða undir í samfélaginu, vera rödd þeirra sem ekki eiga rödd.“ Hún skrifaði einnig: „… það er alveg sama hversu margar tilskipanir hann undirritar til að skerða mannréttindi; fólkið mun alltaf rísa upp og berjast gegn óréttlæti. Fólkið sem hann vill ekki vita af hættir ekki að vera til ... sem betur fer.“
Boðskapur kristinnar trúar um að allt fólk eigi sama tilverurétt hér á jörðu er sígildur, nauðsynlegur og kjarni róttækninnar sem felst í því að virða og elska allt líf. Þessi boðskapur hefur svo oft í gegnum söguna verið þyrnir í augum valdahafa, hvaða nafni sem þeir nefnast. Kvenguðfræðingar hafa á liðnum áratugum lagt sín lóð á vogarskálar þess að túlka ritninguna frá sjónarhóli kvenna og kröfunnar um jafnrétti. Á engan er hallað þótt nafn stofnanda Kvennakirkjunnar, séra Auðar Eir Vilhjálmsdóttur, sé sérstaklega nefnt í þessu samhengi.
Þjóðkirkjan á Íslandi á nýjan biskup, áðurnefnda Guðrúnu Karls Helgudóttur. Hún hefur einnig sýnt hugrekki í orði og gjörðum frá því að hún var vígð til embættis. Við þingsetninguna í september síðastliðnum hóf hún predikun sína á þessum orðum: „Þingmenn mega ekki vera meðvirkir!“ Þessi brýning hefur búið sér stað innra með mér. Hún var og er nauðsynleg, rétt eins og orð biskupsins í Wahsington voru nauðsynleg fyrr í vikunni. Róttækni kristninnar á nefnilega erindi við samtímann og allt fólk, hvort sem það játar kristna trú eða ekki.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 28. janúar 2025.