Átt þú rétt á afslætti á leikskólagjöld?

Fyrir skemmstu lagði ég fram tillögu til bæjarráðs Kópavogs um að tekjuviðmið foreldra leikskólabarna, sem notuð eru til ákvörðunar afslátta á leikskólagjöld yrðu látin fylgja launavísitölu. Tillagan var samþykkt og því liggur fyrir ný tekjuviðmiðatafla. Taflan mun uppfærast ársfjórðungslega frá 1. maí að telja. Frá árinu 2024 hafa öll gjöld Kópavogs uppfærst ársfjórðungslega samkvæmt viðeigandi vísitölu og því hefði þessi leiðrétting átt að eiga sér stað á sama tíma en uppfærist nú frá og með 1. janúar 2024. Breytingarnar eru töluverðar og því geta margir átt rétt á afslætti sem ekki féllu innan viðmiðanna áður. Því miður er það svo að greiðendur þurfa að sækja sérstaklega um afslátt til að fá hann og því er mikilvægt að koma þessum skilaboðum til allra sem mögulega eiga rétt á afslætti m.v. ný tekjuviðmið.

Við þessar breytingar gætir þú í dag fallið undir afsláttarviðmið og þarft því að sækja um afslátt.
Þetta er í mínum huga mikið sanngirnismál bæði vegna reglulegra hækkana leikskólagjalda og vegna þess að þegar verðskrá er stillt þannig upp að þeir sem verða að nýta fullan dvalartíma vegna vinnu borga margfalt hærri gjöld fyrir hverja klukkustund en þeir sem geta nýtt sér styttri dvalartíma. Ég er samþykk þeim aðgerðum sem farið var í til að auka skilvirkni innan leikskólanna, hún hefur skilað sér, en get á sama tíma ekki sætt mig við slíka gjaldskrá. Í upphafi kom ég því til leiðar að afsláttarflokkum var fjölgað og bætt við 50% afslætti fyrir þá sem allra lægstar tekjur hafa. Nú hef ég beitt mér fyrir því að tekjuviðmið fylgi launabreytingum í landinu. Tillögur um lækkun hæstu gjalda hefur meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna ekki hlustað á til þessa og ég á ekki von á að það breytist, því miður.