Eldhúsdagsumræður: Guðmundur Ari

gudmundur-ari

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Við sem íslensk þjóð höfum upplifað á síðustu árum mikla óvissutíma þegar kemur að efnahagsstjórn landsins, heimsfaraldri, náttúruhamförum og ólgu í alþjóðamálum, hvort sem horft er til stjórnmála eða stríðshörmunga.

Maður heyrði það skýrt í fermingarveislum helgarinnar og í heitu pottunum að ringulreiðin í alþjóðamálum, skautunin á samfélagsmiðlum og mannvonskan sem birtist á víglínum í Evrópu sem og á Gaza-svæðinu hvílir þungt á þjóðarsálinni. Fólk er óttaslegið, vonsvikið og jafnvel reitt.

Við slíkar aðstæður er mikilvægt að fólk finni fyrir öryggi og festu við stjórn landsins. Núna er ekki tíminn fyrir stjórnarflokka til að reisa skýjaborgir eða háleitar væntingar um að hægt sé að laga allt á einni nóttu, eða fyrir stjórnarandstöðu að stunda tafaleiki til að hægja á framfaramálum sem njóta stuðnings þjóðarinnar og lýðræðislega kjörnum fulltrúum hennar. Núna er tíminn fyrir ábyrga ríkisstjórn til að ráðast í raunverulegar aðgerðir til að auka öryggi og velferð íslensks samfélags því það er það sem þjóðin kallar eftir.

Fyrsta verkefni ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var að ná aftur stjórn á efnahagsmálum og rekstri ríkissjóðs. Ábyrgð og festa við efnahagsstjórn landsins er grunnforsenda þess að hægt sé að bregðast við áföllum og ráðast í fjárfestingar í innviðum landsins sem og grunnþjónustu. Fráfarandi ríkisstjórn fór þá leið að reka ríkissjóð með miklum halla árum saman á sama tíma og gefnar voru miklar væntingar um stóraukin útgjöld án hagræðingar eða tekjuöflunar. Afleiðingarnar af þessari stefnu voru hátt vaxtastig og mikil verðbólga ásamt því að fólk einfaldlega missti trú á að stjórnvöld ætluðu að standa við það sem þau sögðu eða gætu staðið við það sem þau lofuðu oft við hátíðleg tilefni. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur sýnt með fjármálaáætlun sinni að nú á að fara aðra leið, leið sem byggir á því að sýna ábyrgð í rekstri, ná niður halla ríkissjóðs og að öll loforð um útgjöld séu að fullu fjármögnuð.

Fyrsta skrefið var að ráðast í umfangsmikla hagræðingu til að ná fram umbótum í rekstri ríkisins. Þannig aukum við bæði traust almennings á rekstri ríkisins og tryggjum að við nýtum sameiginlega sjóði á skynsamlegan hátt til að efla þjónustu við fólkið í landinu. Í öðru lagi á að sækja auknar tekjur án þess að hækka skatta á venjulegt fólk. Þetta er gert með því að þjóðin fái réttlátan hlut af hagnaði sem verður til þegar fyrirtæki skapa verðmæti með því að nýta takmarkaðan aðgang að sameiginlegum auðlindum í eigu þjóðarinnar. Í þriðja lagi á að nýta þessar tekjur til að ráðast í fjárfestingarátak í vegakerfinu og öðrum innviðum landsins svo fólk geti treyst á öruggan aðgang að orku, að öruggum samgöngum og bættri þjónustu út um allt land. Slíkar fjárfestingar eru líka þjóðhagslega arðbærar til lengri tíma og nauðsynleg forsenda þess að auka hér verðmætasköpun í landinu sem styrkir enn frekar ábyrgan rekstur ríkissjóðs.

Þessi vegferð er hafin, vextir og verðbólga eru á niðurleið og þetta skiptir landsmenn alla máli, hvort sem það er til að borga hraðar niður húsnæðislánið eða fyrir fyrstu kaupendur sem eiga hugsanlega meiri möguleika núna á að eignast sitt fyrsta húsnæði. Sama má segja um fyrirtæki og sveitarfélög sem eru þegar farin að finna fyrir auknum sveigjanleika í rekstrinum til að ráðast í fjárfestingar og skapa ný störf.

Öryggismál, í hefðbundnum skilningi þess orðs, hafa verið ofarlega á dagskrá ríkisstjórnarinnar síðustu mánuði. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa unnið markvisst að því að efla alþjóðleg tengsl og styrkja sambönd við bandalagsþjóðir okkar, bæði í Evrópu og vestan hafs. Í þeim samskiptum hefur verið lögð áhersla á hagsmunagæslu Íslands og þá sérstöðu að við höfum alltaf verið herlaus þjóð. Við erum ekki stórt land í alþjóðlegum samanburði og því við eigum mikið undir því að standa með þeim sem deila okkar gildum og viðhorfum. Við eigum mikið undir því að alþjóðalög séu virt og að öryggi okkar sé tryggt með öflugu alþjóðlegu samstarfi. Ísland er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu og það er okkar skylda og ábyrgð að vera áfram traustur bandamaður í því. Með öfluga borgaralega innviði og samfélag sem getur tekið þátt í því að verja þau gildi sem bandalagið stendur fyrir.

En öryggi þjóðarinnar byggir ekki aðeins á alþjóðasamstarfi og samstarfi við önnur ríki. Það byggir líka á því að við búum í samfélagi þar sem fólk finnur til öryggis í eigin nærumhverfi. Á síðastliðnum árum hefur okkur fjölgað hratt, hingað sækir metfjöldi ferðamanna ár hvert, á sama tíma og skipulögð glæpasamtök hafa eflt starfsemi sína hér á landi. Því miður hafa innviðir landsins ekki haldið í við þessa þróun, sem hefur m.a. bitnað á löggæslu, fangelsismálum og landamæravörslu. Ríkisstjórnin hefur tekið fast á þessum málum síðastliðna mánuði með frumvörpum um að styrkja landamæri og löggæsluyfirvöld í því verkefni að tryggja öryggi borgaranna. Við höfum lagt fram fjárauka til að fjölga lögreglumönnum, efla nám sérsveitarmanna og gefið út fyrirheit um að ráðast í löngu tímabærar framkvæmdir við nýtt fangelsi. Heimilað verður með nýjum lögum að afturkalla alþjóðlega vernd og brottvísa fólki sem fremur alvarleg afbrot eða ógnar öryggi ríkisins. Við erum nefnilega meðvituð um verkefnin og tökum á þeim með festu og ábyrgð svo Ísland verði áfram öruggt samfélag þar sem fólk getur lifað frjálsu og góðu lífi.

Virðulegi forseti. Ný ríkisstjórn fékk lýðræðislegt umboð frá þjóðinni síðastliðinn vetur og hún er strax farin að láta til sín taka. Ákveðnum málum hefur þegar verið hrint í framkvæmd en önnur eru langtímaverkefni sem ríkisstjórnin mun vinna að næstu fjögur árin. Stefnan er skýr og planið er klárt. Með ábyrgum rekstri ríkissjóðs, sterkum innviðum og samfélagi sem býr við öryggi og traust leggjum við grunninn að því norræna velferðarsamfélagi sem við eigum hér saman. Á þeim trausta grunni sköpum við samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, læra og vaxa á eigin forsendum, óháð bakgrunni eða búsetu. Við sköpum aðstæður þar sem öflugir skólar og kraftmikil nýsköpun knýja áfram atvinnulífið sem skapar verðmæti fyrir þjóðina alla. Og það er á þessum grunni sem við tryggjum að börnin okkar, ömmur og afar fái aðgang að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu þegar á þarf að halda.

Kæru landsmenn. Þetta samfélag er ekki sjálfgefið. Það byggist á öryggi, trausti og samstöðu. Við skulum í sameiningu, öll sem hér erum inni, standa vörð um það og rækta til framtíðar.