Fjárfestinga- og innviðaáætlun fyrir Ísland

Fjölmörg rök hníga að því að ráðast í fjárfestingarátak á Íslandi. Innviðaskuld er staðreynd og hefur hlaðist upp.

Hún er metin á 680 milljarða af Samtökum iðnaðarins en ekkert formlegt mat liggur fyrir af hálfu opinberra aðila.
Ríkisstjórnin hefur skýr áform um að bæta úr. Í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er lögð sérstök áhersla á að auka fjárfestingu í samgöngum og hefja kraftmiklar framkvæmdir um land allt. Rjúfa á kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Ráðist verður í mikilvægar úrbætur í samræmi við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Verkefni sáttmálans eru á fleygiferð. Fossvogsbrú er komin í útboð. Tíðni eykst hjá Strætó í ágúst og útfærslur á Sæbrautarstokki og Sundabraut verða fljótlega kynntar. Miklubrautargöngum ætti að flýta.
Síðasta tillaga að samgönguáætlun Alþingis náði ekki fram að ganga. Það var vegna deilna í fyrrverandi ríkisstjórn og þess að stórir hlutar hennar, vegaframkvæmdir og jarðgangagerð, voru ófjármagnaðir. Úr því þarf að bæta.
Aukið fé til vegagerðar á landsbyggðinni verður meðal annars sótt með hækkun veiðigjalda. Því er afar mikilvægt að sú fjármögnun gangi eftir.
Einnig þarf að fjármagna viðhald og uppbyggingu vegakerfisins almennt. Það var stefna fyrri ríkisstjórnar að tekjur af umferð myndu aftur ná fyrri fjárhæðum og hlutfalli af landsframleiðslu. Í því skyni átti að leggja á kílómetragjald og taka upp umferðar- og flýtigjöld og gjaldtöku í tengslum við einstakar framkvæmdir. Það fellur í hlut núverandi ríkisstjórnar að ná þessum málum fram og útfæra sem best.
Til að ráðast í innviðaátak hefur því verið boðuð stofnun sérstaks félags til að hleypa nægjanlegum krafti í innviðaframkvæmdir í samgöngukerfinu, hringinn í kringum landið. Mikilvægt er að hraða því og að útfærslan verði gagnsæ og skýr.
Öryggis- og varnarmál kalla einnig á aukna fjárfestingu og innviði á næstu árum, meðal annars í sameiginlegu húsnæði lögreglu, Landshelgisgæslu og viðbragðsaðila, en einnig í flugvöllum, heilbrigðisþjónustu og tækjum til leitar og björgunar. Þetta kallar sannarlega einnig á forgangsröðun og vandaða áætlunargerð.
Staða efnahagsmála, þar sem hátt vaxtastig hefur dregið úr fjárfestingu og hagvexti, undirstrikar mikilvægi fjárfestingarverkefna sem eru þjóðhagslega hagkvæm, vandlega undirbúin, fjármögnuð og vel tímasett.
Í ljósi farsællar sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, og langþráðs uppgjörs á fortíðarvanda Íbúðalánasjóðs, skapast færi í að taka til í skuldum ríkisins og vinna að hagstæðari vaxtakjörum. Einnig skapast svigrúm fyrir það fjárfestingar- og innviðaátak sem nú þarf. Við höfum allar forsendur til að fjárfestinga- og innviðaáætlun fyrir Ísland verði að veruleika.
Greinin birtist í Morgunblaðinu.