Verra en helvíti á jörðu

Grimmileg hryðjuverkaárás Hamas-liða á Ísrael 7. október 2023 var að sögn gerð til að koma Palestínudeilunni aftur í kastljós alþjóðasamfélagsins. Það sem síðan hefur gengið á hefur markað kaflaskil í tæplega 80 ára langri sögu fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ísraelsher hefur svo gott sem tekist að útrýma Hamas og Hezbolla. Sýrlandsstjórn er fallin, fjórtán árum frá upphafi borgarastyrjaldarinnar. Ríkisstjórn Ísraels er stjórnað af öfga hægri öflum sem fara ekki leynt með þá ætlun sína að ljúka stríðinu með þjóðernishreinsunum, þjóðarmorði. Rætt er um flutning allra Palestínubúa „eitthvert annað“ eins og það sé raunverulegur kostur og eðlileg niðurstaða deilunnar um tilverurétt palestínsku þjóðarinnar.
Innviðir á Gasa-ströndinni eru rústir einar eftir 20 mánaða langt stríð. Næstum allar byggingar, vegir og veitukerfi eru ónýt. Á stórum svæðum hefur Ísraelsher beinlínis rutt allri mannabyggð á brott með jarðýtum. Tæplega 60.000 manns hafa týnt lífi, þar af tæplega 15 þúsund börn! Það er fordæmalaust hlutfall látinna barna í stríði. Hvergi á jörðinni er að finna eins mörg aflimuð börn og á Gasa. Þótt þau lifi af, hafa þau misst systkini, foreldra og frændfólk. Heilu stórfjölskyldurnar hafa verið þurrkaðar út. Öll þessi börn glíma við áfallastreitu sem mun marka þau fyrir lífstíð.
Að minnsta kosti 55 þúsund manns eru fallin. Aldrei í sögunni hafa hlutfallslega jafnmörg börn fallið í stríðsátökum og í þessu stríði. Þúsundir barna eru örkumla, aflimuð, og þurfa mikla aðhlynningu. 180 fréttamenn liggja í valnum. Það er líka ófyrirgefanlegt met. Hundruð hjálparstarfsfólks hafa einnig týnt lífi og jafnvel verið gerð að sérstökum skotmörkum. Þegar Ísraelsher drap 15 sjúkraflutningamenn Rauða hálfmánans með köldu blóði og reyndi síðan að hylma yfir glæpinn, jafngilti það siðferðilegu gjaldþroti stjórnvalda í Ísrael. Þetta eru stór orð en þau eru ekki sögð af ástæðulausu.
Forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins var ómyrk í máli í viðtali við BBC í nýliðinni viku. Ástandið á Gasa er verra en helvíti á jörðu, lét Mirjana Spoljaric hafa eftir sér. Við sem höfum fylgst með fréttum frá íbúum Gasa og fréttastöðinni Al Jazeera síðastliðna 20 mánuði vitum að forseti Alþjóðaráðsins er að lýsa afleiðingum stríðsins á Gasa, rétt eins og þær eru. Stöðu sinnar vegna velur Spoljaric orð sín vandlega. Trúverðugleiki og traust á alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans er í húfi. Það er ástæða til að hlusta þegar forseti stærstu mannúðarhreyfingar í heimi talar með þessum hætti.
Á Gasa er hafin hungursneyð af manna völdum. Enn einn stríðsglæpurinn sem virðist framinn af kaldri yfirvegun. Tómarúm hefur myndast í alþjóðakerfinu. Rúm sem Evrópuríki og fleiri verða að fylla. Það hefur meðal annars verið verkefni ríkisstjórnar Íslands að kalla saman líkt þenkjandi evrópskar ríkisstjórnir til að reyna að fá stórveldin til að tjónka við stríðsherrana í Jerúsalem. Það veitir mikilvægan þrýsting gagnvart ESB og stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Ekki veitir af.
Þórunn Sveinbjarnardóttir. Höfundur er forseti Alþingis.