Samfylkingin á Akureyri stillir upp

Á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri þann 12. janúar var tillaga stjórnar að raðað yrði á framboðslista af sérkjörinni uppstillingarnefnd samþykkt. 

Félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri, sem haldinn var mánudaginn 12. janúar, samþykkti einróma tillögu stjórnar félagsins að viðhafa uppstillingu við val á framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2026.

Tillaga stjórnar fól jafnframt í sér að skipa sérstaka uppstillingarnefnd. Formaður og tengiliður uppstillingarnefndarinnar er Unnar Jónsson. Nefndinni er falið það verkefni að stilla upp öflugum og fjölbreyttum lista jafnaðarfólks sem sækir fram til sigurs í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri í vor.

Þegar uppstillingarnefnd hefur lokið störfum verður boðað til annars félagsfundar svo bera megi listann upp til samþykktar hjá félagsfólki.

Frekari upplýsingar frá uppstillingarnefnd berast von bráðar.