Allt um uppstillingu í Kópavogi

Samfylkingin í Kópavogi óskar eftir framboðum og tilnefningum.

Hægt er að bjóða sig fram og/eða tilnefna fólk á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí nk., í gegnum rafrænt eyðublað: https://forms.gle/6fPhyouVEsopjNsA6

Viðmið um frest 

Uppstillingarnefnd biðlar til fólks að skila inn framboðum og tilnefningum eigi síðar en fyrir lok dags miðvikudagsins 25. febrúar. Þó að hér sé einungis um viðmið að ræða og tekið verði á móti framboðum og tilnefningum eftir þann tíma, er stefnt á að bera listann upp til samþykktar eigi síðar en 11. mars nk., og mun vinna uppstillingarnefndar vera eftir því. 

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi

Í samræmi við niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Kópavogi þann 7. febrúar 2026 skipa eftirfarandi einstaklingar 1.- 4. sæti á lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum:

1. sæti - Jónas Már Torfason

2. sæti - Eydís Inga Valsdóttir

3. sæti - Hákon Gunnarsson

4. sæti - Sólveig Skaftadóttir

Uppstillingarnefnd hefur það verkefni að skipa önnur sæti á framboðslistanum.

Að lokum

Uppstillingarnefnd hvetur sem flest til þess að bjóða sig fram og/eða tilnefna mögulega frambjóðendur. Frekari fyrirspurnir er hægt að senda á kopavogur@samfylking.is

Boðað verður til félagsfundar hjá Samfylkingunni í Kópavogi til þess að bera listann upp til samþykktar ekki seinna en 11. mars 2026.

Kær kveðja uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Anna Klara Georgsdóttir

Jóna Þórey Pétursdóttir

Þorvar Hafsteinsson