Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi flokksins í dag, 28. febrúar.
Samfylkingin fékk 29% atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningum í Hafnarfirði árið 2022 og fjóra bæjarfulltrúa kjörna.
„Við jafnaðarmenn eigum traustar rætur í Hafnarfirði og ætlum upp á við og erum reiðubúin til að hafa forystu um stjórn bæjarins eftir kosningarnar 16. maí næstkomandi. Skoðanakannanir hafa sýnt sterka stöðu flokksins í Hafnarfirði og íbúar hafa vilja til að kalla Samfylkinguna til ábyrgðar,” segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti flokksins í bænum og varaformaður Samfylkingarinnar og bætir við: „Þessi framboðslisti jafnaðarmanna undirstrikar breidd og kraft. Þar er að finna fólk með fjölbreyttan bakgrunn á öllum aldri; fólk með reynslu og þekkingu og einnig nýtt fólk, ekki síst úr röðum unga fólksins, sem getur og mun láta til sín taka. Framboðslistinn er sigurstranglegur og við erum bjartsýn og jákvæð fyrir framhaldinu. Við jafnaðarmenn erum til í verkin!“
Listi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í næstu sveitarstjórnarkosningum:
- Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar.
- Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi.
- Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Samfylkingarinnar.
- Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur.
- Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi og prestur.
- Hekla Sóley Arnarsdóttir, þroskaþjálfi.
- Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, félagsmálafulltrúi hjá verkalýðsfélaginu Hlíf.
- Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla.
- Jón Grétar Þórsson, starfsmaður í félagsþjónustu.
- Auður Brynjólfsdóttir, stjórnmálafræðingur.
- Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits.
- Hrund Biering Valsdóttir, eftirlit og verkefnastýring á Verkfræðistofu Reykjavíkur.
- Árni Freyr Ársælsson, deildarstjóri hjá Rafal.
- Jóhanna Ósk Maríudóttir Nielsen, sálfræðingur.
- Sigurður Þórður Ragnarsson, jarðvísindamaður.
- Gundega Jaunlinina, varaformaður verkalýðsfélagsins Hlífar.
- Valdimar Aðalsteinsson, háskólanemi.
- Sonja Magnúsdóttir, eigandi Fitnesssport.
- Ragnar Már Jónsson, saxafónleikari og tónlistarkennari.
- Sigrid Foss, eftirlaunaþegi.
- Tryggvi Rafnsson, leikari og verkefnastjóri.
- Valgerður M. Guðmundsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og oddviti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar voru heiðursgestir á fundinum og tóku til máls. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar forfallaðist vegna veikinda.