Jónas Már leiðir lista Samfylkingarinnar í Kópavogi

Niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Kópavogi voru kynntar á Krónikunni kl. 18.00 í dag að lokinni kosningu meðal félagsmanna flokksins og stuðningsmanna í Kópavogi.
Alls voru 6 frambjóðendur í kjöri og kepptu þau um fjögur efstu sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Kosningin hófst klukkan 9:00 og lauk klukkan 17:00. Flokksvalið fór fram með rafrænni kosningu, kjörsókn var góð, 43.08%.
Jónas Már Torfason bar sigur úr býtum í flokksvali Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Jónas er uppalinn í Kópavogi og flutti nýlega aftur í bæinn eftir dvöl í Danmörku. Hann starfar sem sérhæfður ráðgjafi á lögmannsstofunni Réttur - Aðalsteinsson & Partners. Áður starfaði hann sem fulltrúi í banka- og fjármögnunarteymi dönsku lögmannsstofunnar Plesner í Kaupmannahöfn, sem lögfræðingur á LOGOS, sem blaðamaður á Fréttablaðinu og sem framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Þá hefur hann sinnt ýmsum trúnaðarstörfum bæði innan og utan Samfylkingarinnar.
Áherslur Jónasar eru málefni barnafjölskyldna, barna og ungmenna, málefni eldri borgara auk þess að vilja beita sér í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í bænum.
Niðurstöður flokksvalsins eru eftirfarandi:
1. Jónas Már Torfason
2. Eydís Inga Valsdóttir
3. Hákon Gunnarsson
4. Sólveig Skaftadóttir
Með niðurstöðunum liggur nú fyrir öflugur framboðslisti sem endurspeglar áherslur Samfylkingarinnar í Kópavogi.