Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur

Listi Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningar í maí var samþykktur á fundi fulltrúaráðs í dag.

„Listinn endurspeglar nýtt upphaf og vilja félaga í Samfylkingu til að sjá breytingar í borginni. Oddviti og borgarstjóraefni Samfylkingar, Pétur Marteinsson, hefur gríðarsterkt umboð til að leiða flokkinn í Reykjavík eftir sigur í stærsta prófkjöri á landinu. Þá stillum við upp reynslumiklum stjórnanda í baráttusætið, Regínu Ásvaldsdóttur, sem leitt hefur tvö öflug sveitarfélög sem bæjarstjóri: Akranes og Mosfellsbæ. Þau hafa, ásamt nýju flottu ungu fólki sem skipar listann, kraft, reynslu og þekkingu til að hrista upp í kerfinu,“ segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður uppstillingarnefndar flokksins.

„Ég tel að þessi mikla endurnýjun endurspegli ekki bara vilja þeirra þúsunda sem tóku þátt í prófkjörinu í borginni heldur einnig vilja stórs hluta borgarbúa. Samfylkingin hefur gengið í gegnum mikla hugmyndafræðilega endurnýjun á síðustu árum og leitt breytingar í landsstjórninni. Ég tel tímabært að yfirfæra hana yfir á rekstur borgarinnar. Klassísk jafnaðarmál, áhersla á góðan grunnrekstur og endurskoðun sumra verkefna og stefnuákvarðana sem hafa verið ráðandi í borginni síðustu kjörtímabil,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti.

„Þetta er samstíga og kraftmikill hópur með reynslu tveggja núverandi borgarfulltrúa innanborðs. Fjölbreytt fólk með fjölbreytta reynslu sem ætlar að vinna fyrir og með Reykvíkingum að jákvæðum breytingum í borginni okkar. Nú tekur við milliliðalaust samtal við borgarbúa. Það samtal er reyndar þegar hafið og það hefur verið frábært að finna fyrir jákvæðni alls staðar þar sem við komum. Sérstaklega fyrir mig sem er nýliði í stjórnmálum,“ segir Pétur.

**

Listinn í heild:

1. Pétur Hafliði Marteinsson, rekstrarstjóri og fv. knattspyrnumaður

2. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri

3. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, ráðgjafi og fyrrum talskona Stígamóta

4. Skúli Helgason, borgarfulltrúi

5. Stein Olav Romslo, kennari

6. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, rekstrarstjóri

7. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ

8. Birkir Ingibjartsson, arkitekt

9. Isabel Alejandra Díaz, stjórnsýslufræðingur og fyrrum forseti Stúdentaráðs HÍ

10. Sara Björg Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi

11. Katarzyna Kubis, þroskaþjálfi og verkefnastjóri hjá Þroskahjálp

12. Arnar Ingi Ingason, tónlistarmaður

13. Steinunn Ósk Óskarsdóttir, forstöðukona Batahúss

14. Hildur Oddsdóttir, öryrki og formaður Hjálparkokka

15. Harpa Sif Eyjólfsdóttir, doktor í faraldsfræði

16. Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri

17. Hlynur Páll Pálsson, mannauðsstjóri

18. Tinna Davíðsdóttir, lyfjafræðingur og jógakennari

19. Jón Heiðar Þorkelsson, tæknimaður

20. Fanney Dóra Veigarsdóttir, leikskólakennari

21. Stefán Árni Geirsson, knattspyrnumaður

22. Magnea Marinósdóttir, stjórnmálafræðingur

23. Steindór Örn Gunnarsson, húsasmiður og formaður Hallveigar

24. Valný Óttarsdóttir, iðjuþjálfi

25. Kristján Benjamín Guðmundsson, rekstrarhagfræðingur og eldri borgari

26. Vigdís Freyja Gísladóttir, leikskólastarfsmaður

27. Rúnar Logi Ingólfsson, verkefnastjóri

28. Jódís Bjarnadóttir, félagsráðgjafi

29. Brynjar Bragi Einarsson, menntaskólanemi

30. Marzibil Sæmundardóttir, kvikmyndagerðarkona

31. Jóhann Ágúst Jóhannsson, plötusali

32. María Gyða Pétursdóttir, læknir

33. Aland Shirwan Kamal, háskólanemi

34. Elva Dögg Gunnarsdóttir, leikskólakennari

35. Sveinn Eggert Jónsson, sölumaður

36. Brynhildur Björnsdóttir, framhaldsskólakennari

37. Halla Þorkelsson, verslunarmaður

38. Þórður Árnason, tónlistarkennari og gítarleikari

39. Lilja Ólafsdóttir, rauðsokka

40. Hörður Filippusson, prófessor emeritus

41. Aðalheiður Frantzdóttir, eldri borgari

42. Sigfús Ómar Höskuldsson, leiðsögumaður

43. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi

44. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu jafnréttismála og fyrrum borgarstjóri

45. Dagur B. Eggertsson, alþingismaður, læknir og fyrrum borgarstjóri

46. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum borgarstjóri