Samfylkingin býður fram í Fjarðabyggð

Á félagsfundi í dag, 28. febrúar, var samþykkt að Samfylkingin í Fjarðabyggð muni bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026.

Stjórn félagsins lagði einnig til, að áeggjan Fjarðalistans, að framboðið verði kallað Samfylking og annað félagshyggjufólk.

Á fundinum var einnig samþykkt að raðað verði á lista framboðsins með uppstillingu og samhliða var kosin fimm manna uppstillinganefnd. Framboðið mun hvíla á grunni klassískrar jafnaðarstefnu og félagshyggju. Þau sem standa að framboðinu munu leggja áherslu á að hlusta á kjósendur, eiga milliliðalaust samtal við þá, bera virðingu fyrir upplifunum þeirra og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta lífsgæði allra íbúa í sveitarfélaginu.

Saman þá getum við gert frábært sveitarfélag enn betra.