Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi var samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi í gærkvöld.

Samfylkingin á Akranesi mætir til leiks með framboðslista sem skipaður er fólki á öllum aldri, með fjölbreytta þekkingu og reynslu af öllum hliðum samfélagsins okkar hér á Akranesi. Frambjóðendur okkar starfa við hin ýmsu störf, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera, og hafa þá sameiginlegu sýn að til að þjónusta bæjarfélagsins við íbúa sína geti verið framúrskarandi hér eftir sem hingað til, þá þurfi hún að standa á stoðum öflugs og fjölbreytts atvinnulífs.

Listinn er þannig skipaður:

1. Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi hjá Sjóvá á Akranesi

2. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda

3. Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.

4. Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi

5. Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ

6. Katrín Valdís Hjartardóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi

7. Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi

8. Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði

9. Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari

10. Örn Arnarson, grunnskólakennari

11. Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur

12. Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur

13. Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.

14. Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar

15. Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari

16. Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur

17. Ásta Egilsdóttir, kennari

18. Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari

Samfylkingin leggur áherslu á fyrsta flokks þjónustu við íbúa, metnað í uppbyggingu þeirra mannvirkja sem hýsa þjónustuna og styrka fjármálastjórn bæjarins, byggða á skýrri stefnumótun til framtíðar. Samfylkingin gengur til kosninga í vor með þrjú meginmarkmið:

• Að lækka kostnað barnafólks

• Að hlúa að fólkinu sem byggði landið

• Að auðvelda rekstur og uppbyggingu með einföldun regluverks á öllum sviðum.

Við óskum öllum frambjóðendum til hamingju með þeirra sæti á framboðslistanum og hlökkum til að vinna með þeim í spennandi og skemmtilegri kosningabaráttu á næstu vikum.