Framboðslisti Samfylkingar og óflokksbundra í Hveragerði

Samfylkingin og óflokksbundnir (X-S) bjóða nú fram í Hveragerði til sveitarstjórnarkosninganna í vor.

Framboðslistinn var kynntur á opnum kynningarfundi í húsi leikfélagsins við Austurmörk 23, laugardaginn 14. mars.

Listinn er skipaður öflugu fólki með fjölbreytta reynslu og þekkingu sem vill leggja sitt af mörkum til þróunar og áframhaldandi uppbyggingar Hveragerðisbæjar.

Í starfinu framundan hjá S-listanum verður lögð áhersla á að fólk með ólíkar skoðanir og ólíkan bakgrunn geti fundið sér farveg og staðið saman með félagshyggju og jafnaðarstefnu að leiðarljósi.

S-listinn í Hveragerði er þannig skipaður:
1. Birgitta Ragnarsdóttir, tollamiðlari
2. Þorsteinn Hjartarson, eldri borgari og fv. fræðslustjóri
3. Maria Araceli, dans- og leiklistarkennari
4. Guðmundur Benóný Baldvinsson, lagerstjóri
5. Berglind Ósk Guttormsdóttir, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi
6. Arnar H. Halldórsson, verkfræðingur
7. Árný Fjóla Ásmundsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla og listakona
8. Tómas Kristjánsson, sálfræðingur og lektor
9. Kristín Lilja Thorlacius, bókasafns- og upplýsingafræðingur
10. Halldór Grétar Einarsson, tæknistjóri
11. Harpa Björnsdóttir, deildarstjóri og leikskólakennari
12. Hjálmar Trausti Kristjánsson, bílstjóri
13. María Arnardóttir, myndlistarkona
14. Ingibjörg Sigmundsdóttir, eldri borgari og fv. garðyrkjubóndi