Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð

Stefán Þór Eysteinsson, bæjarfulltrúi leiðir lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð.
Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Neskaupstað í kvöld.
Framboðið hvílir á grunni klassískrar jafnaðarstefnu og félagshyggju. Listinn er skipaður öflugu fólki með fjölbreytta reynslu og þekkingu sem mun leggja áherslu á að hlusta á kjósendur, eiga milliliðalaust samtal við þá, bera virðingu fyrir upplifunum þeirra og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta lífsgæði allra íbúa í sveitarfélaginu.
Oddviti listans er Stefán Þór Eysteinsson, bæjarfulltrúi.
„Það er mikill heiður að fá að leiða þennan öfluga hóp fólks í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á listanum er fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíkan bakgrunn og sterka tengingu við samfélagið. Það sem við eigum hins vegar öll sameiginlegt er skýr vilji til að leggja okkar af mörkum til að efla Fjarðabyggð. Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er virkilega spenntur fyrir því að vinna með þessum hópi að því að kynna málefnin okkar og eiga gott samtal við íbúa um þau verkefni sem eru framundan.“
Listinn í heild sinni:
1. Stefán Þór Eysteinsson, bæjarfulltrúi
2. Hjördís Helga Seljan, bæjarfulltrúi
3. Valborg Ösp Árnadóttir Warén, stjórnmálafræðingur
4. Adam Ingi Guðlaugsson, vélfræðingur
5. Arndís Bára Pétursdóttir, aðstoðarskólastjóri
6. Ásdís Helga Jóhannsdóttir, kjarasérfræðingur
7. Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður AFLs
8. Esther Ösp Gunnarsdóttir, hönnuður
9. Aðalbjörg Eva Sigurðardóttir, leiðbeinandi
10. Jaroslaw Grzegorz Zajaczkowski, bifvélavirki
11. Salóme Rut Harðardóttir, íþróttakennari
12. Joanna Katarzyna Mrowiec, kennari
13. Oddur Sigurðsson, bóndi
14. Sveinn Fannar Sæmundsson, sagnfræðingur
15. Anna Sigrún Jóhönnudóttir, öryrki og verslunareigandi
16. Kristrún Antonsdóttir, félagsliði
17. Benedikt Sigurjónsson, fyrrv. bæjarverkstjóri
18. Björn Hafþór Guðmundsson, eldri borgari