Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi

Samfylkingin í Kópavogi kynnti í gærkvöldi lista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 16. maí í sal Siglingafélagsins Ýmis.
„Það er mikill heiður að fá að leiða svona öflugan lista sem sameinar ferska nýliða og reynslubolta. Við sjáum að verkefnið okkar er skýrt. Það þarf að forgangsraða verkefnum í bænum í þágu grunnþjónustu við íbúa. Við þurfum að lækka kostnað foreldra, greiða úr skrifræði sem fyrirtæki bæjarins þurfa að takast á við og bæta þjónustu við eldri borgara. Það er ekki annað hægt en að vera spenntur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningum enda eru tækifærin til bætingar mörg og listinn feykisterkur” segir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
„Samfylkingin kynnir nú öfluga lista um allt land í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og það hefur verið afar ánægjulegt að geta verið viðstödd nokkrar slíkar kynningar á síðustu vikum. Ég er stolt af listanum okkar í Kópavogi. Við teflum fram metnaðarfullu fólki sem hefur skýra sýn á það hvernig við byggjum upp sterkara samfélag fyrir Kópavogsbúa, með gildi jafnaðarstefnunnar að leiðarljósi,” segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sem ávarpaði fundinn í Kópavogi í kvöld.
Listi Samfylkingarinnar í Kópavogi:
- Jónas Már Torfason, lögfræðingur
- Eydís Inga Valsdóttir, teymisstjóri hjá Rannís
- Hákon Gunnarsson, rekstrarhagfræðingur og varabæjarfulltrúi
- Sólveig Skaftadóttir, alþjóðafræðingur
- Orri Thor Eggertsson, nemi í rekstrarverkfræði og stjórnarmaður Taekwondofélagi Kópavogs
- Hildur María Friðriksdóttir, sérfræðingur í jarðskorpurannsóknum á Veðurstofu Íslands
- Örn Arnarson, kennari og formaður Samleiks
- Mirabela Blaga, fasteignasali
- Björn Þór Rögnvaldsson, lögfræðingur
- Sólveig Jóhannesdóttir Larsen, nemi í stjórnmálafræði
- Sigurður Kári Harðarson, nemi við lýðháskóla
- Friðmey Jónsdóttir, deildarstjóri félagsmiðstöðva, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfés
- Kristján Bjarnar Ólafsson, hagfræðingur hjá FSRE
- Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands
- Jón Júlíusson, formaður GKG og fyrrv bæjarfulltrúi
- Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen, dr. í sálfræði, Opni háskólinn HR
- Ingi Hafliði Guðjónsson, matvinnslumaður og viðskiptafræðingur
- Heiða Björk Þórbergsdóttir, framkvæmdastjóri
- Erlendur Geirdal, tæknifræðingur
- Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri
- Bergljót Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi
- Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrum ráðherra og bæjarfulltrúi