Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi núna síðdegis.
Nýr oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ er Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur, sem setið hefur sem varabæjarfulltrúi á líðandi kjörtímabili.
Anna Sigríður Guðnadóttir, sem var oddviti flokksins í síðustu kosningum og sitjandi bæjarfulltrúi á líðandi kjörtímabili, er í heiðurssæti listans.
,,Þessi glæsilegi listi fléttar saman reynslu og ferskum vindum. Það er mér heiður að vera fyrirliði í svo flottu liði. En það er líka eins gott að Samfylkingin mæti sterk til leiks, því það er mikið undir. Við höfum verið í meirihluta á liðnu kjörtímabili og náð miklum árangri sem við erum afar stolt af. Verkefnið framundan er að kynna þann árangur, stefnuna áfram vegin, og afla okkur trausts kjósenda til að við getum haldið áfram á þeirri braut." segir Ólafur Ingi, nýr oddviti.
Listinn í heild sinni:
1 Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og formaður velferðanefndar
2 Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi
3 Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og náttúrufræðingur
4 Auður Einarsdóttir, laganemi
5 Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, verkfræðingur
6 Elín Eiríksdóttir, sérkennari FMOS
7 Sigurður Óli Karlsson, stjórnmálafræðinemi
8 Viktoría Magnúsdóttir, háskólanemi
9 Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, skrifstofustjóri Þroskahjálpar
10 Þóra Sigrún Kjartansdóttir, hársnyrtir
11 Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari
12 Kristín María Ingimarsdóttir, kennari og hönnuður
13 Kári Freyr Kane, stjórnmálafræðinemi
14 Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri Sjúkratrygginga
15 Þyrnir Hálfdán Þyrnisson, nemi
16 Þóra Hermannsdóttir Passauer, tækniteiknari
17 Guðbjörn Sigvaldason, verslunarmaður
18 Þórunn Ísfeld, eftirlaunakona
19 Ragnar Gunnar Þórhallsson, baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks
20 Kristín Sæunnar Sigurðardóttir, eftirlaunakona
21 Jónas Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og fyrrverandi formaður FAMOS
22 Anna Sigríður Guðnadóttir, stjórnsýslu- og upplýsingafræðingur og bæjarfulltrúi