Listi Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ

S-listinn, listi Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ, hefur lagt fram framboðslista sinn fyrir

Framboðið bauð til kynningarfundar og samtals við frambjóðendur á Bókasafni Suðurnesjabæjar sunnudaginn 29. mars. Svavar Grétarsson sem leiðir framboðið kynnti

frambjóðendur til leiks og lýsti um leið ánægju sinni með öflugan og fjölbreyttan framboðslista sem skipaður er aðilum úr báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar, Garði og Sandgerði. Þá sagði Svavar jafnframt frá því að á næstu dögum verður íbúum og áhugasömum boðið að taka þátt í málefnavinnu með frambjóðendum áður en formleg stefnuskrá verður birt og að búast megi við líflegum og skemmtilegum undirbúningstíma fyrir komandi kosningar sem S-listinn er svo sannarlega tilbúinn til að taka þátt í. S-listinn í Suðurnesjabæ mun leggja mikla áherslu á sameinað samfélag á komandi kjörtímabili og í kosningabaráttunni.

Listi Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ er skipaður eftirfarandi aðilum:

1. Svavar Grétarsson, flotastjóri

2. Bergný Jóna Sævarsdóttir, verkefnastjóri og stjórnsýslufræðingur

3. Egill Rúnar Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, atvinnurekandi og ökukennari

4. Önundur S. Björnsson, bæjarfulltrúi og fyrrum sóknarprestur

5. Thelma Dís Eggertsdóttir, grunnskólakennari

6. Bára Kristín Þórisdóttir, háskólanemi, er í fæðingarorlofi

7. Agnes Helgadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur

8. Jón Þór Jónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Sigurvonar, háskólanemi og

stuðningsfulltrúi

9. Benóný Þórhallsson, smiður

10. Przemyslaw Antoni Szymajda, verkstjóri

11. Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður

12. Hildur Guðný Björnsdóttir, nemi

13. Fannar Sigurbjörnsson, slökkviliðsmaður

14. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, fyrrum gjaldkeri

15. Jón Snævar Jónsson, húsasmíðameistari

16. Sigursveinn Bjarni Jónsson, sölustjóri og formaður bæjarráðs

17. Elín Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali og fyrrum bæjarfulltrúi

18. Jórunn Alda Guðmundsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri og eldri borgari