Höfnin þarf helgunarsvæði

Undanfarið hafa verið kynnt áform um uppbyggingu nýs íbúðarhverfis á svæði milli elstu byggðar Þorlákshafnar og hafnarsvæðisins, við Óseyrarbraut.

Gunnsteinn Ómarsson Oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Ölfusi

Um er að ræða verulega breytingu á landnotkun þar sem gert er ráð fyrir þéttri íbúðabyggð á svæði sem liggur beint að starfandi vöruflutninga- og iðnaðarhöfn.

Það er ástæða til að staldra við og spyrja hvort slík þróun sé skynsamleg til lengri tíma litið, fyrir bæinn, íbúa hans og framtíð hafnarinnar.

Höfnin er lífæð samfélagsins. Hún er ein helsta forsenda atvinnu, verðmætasköpunar og framtíðarþróunar í Þorlákshöfn og Ölfusi og raunar á mun stærra svæði. Starfsemi hafnarinnar er í örum vexti og öll áform um skipulag í nágrenni hennar verða að taka mið af áratuga þróun, ekki aðeins næstu uppbyggingarlotu. Höfn þarf svigrúm, helgunarsvæði frá íbúðabyggð, ekki þéttingu byggðar ofan í höfnina.

Reynsla víða sýnir að það er vandasamt að blanda saman íbúðarbyggð og atvinnusvæðum, hvað þá hafnarsvæði með mikilli og vaxandi starfsemi. Þungaflutningar, hávaði, ljósmengun og loftmengun fylgja óhjákvæmilega slíkri starfsemi. Þótt hugmyndir um „vistgötur“ og „fólk í fyrirrúmi“ hljómi vel á teikningum breytir það ekki eðli hafnarinnar né þeirri staðreynd að umferð þungaflutningabíla mun aukast verulega í framtíðinni. Árekstrar milli væntinga íbúa og raunveruleika atvinnustarfsemi eru því fyrirsjáanlegir og slíkir árekstrar enda oftar en ekki með því að atvinnusvæði víkja fyrir íbúum með tilheyrandi tekjutapi og hindrun fyrir atvinnulífið.

Þá ber einnig að horfa til þess að uppbygging íbúða í Þorlákshöfn er þegar mikil og fer bæði til vesturs og norðurs, þar sem miðja bæjarins er smám saman að færast í takt við þá þróun. Engin knýjandi nauðsyn er á að byggja stórt íbúðarhverfi austan elstu byggðarinnar, á þeim jaðri bæjarins, með tilheyrandi aukinni umferð um götur elsta bæjarhlutans.

Græn svæði eru ekki óþrjótandi. Svæðið við Óseyrarbraut austan elstu byggðarinnar hefur lengi verið hluti af útivistarsvæði bæjarbúa og gegnir mikilvægu hlutverki sem skil milli íbúðarbyggðar og hafnar. Að fórna þessum svæðum fyrir þétta íbúðabyggð er hægt að túlka sem skammtímasjónarmið sem mögulega dregur úr gæðum byggðar til framtíðar.

Þorlákshöfn á að þróast en hún á að þróast af skynsemi. Það er ekki farsælt að reisa íbúðarbyggð ofan í starfandi og ört vaxandi vöruflutninga- og iðnaðarhöfn. Höfnin á að vera styrkur bæjarins, ekki vandamál sem síðar þarf að leysa með kostnaðarsömum málamiðlunum.

Réttara væri að hverfa frá þessum hugmyndum og móta skipulag sem stendur vörð um vöxt bæði atvinnulífs og íbúðabyggðar.

 

Gunnsteinn R. Ómarsson - Oddviti S-lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi.