Með sterkar rætur í bænum og vill byggja upp öflugt og lifandi samfélag

Kynning á oddvita Samfylkingarinnar á Seltjarnarnes.
Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi og hefur um árabil tekið virkan þátt í félagslífi bæjarins, meðal annars í stjórnum félagasamtaka og sem formaður Golfklúbbs Seltjarnarness. Þá hefur hann einnig komið að starfi hjá íþróttafélaginu Gróttu.
Hann er reyndur stjórnandi með áratuga reynslu af rekstri, mannauðsmálum og markaðsstarfi og hefur starfað bæði hjá félagasamtökum og fyrirtækjum. Samhliða því hefur hann verið virkur í samfélags- og sjálfboðastarfi.
Kristinn starfar í dag sem framkvæmdastjóri og leiðsögumaður. Hann segir að áhugi á nærsamfélaginu og vilji til að leggja sitt af mörkum hafi ráðið miklu um ákvörðun hans að fara í framboð. Listinn sem hann leiðir samanstendur af fjölbreyttum hópi fólks með ólíkan bakgrunn og reynslu.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra telja að Seltjarnarnes búi yfir miklum styrkleikum og hafi alla burði til að vera eitt eftirsóknarverðasta sveitarfélag landsins. Á sama tíma hafi áskoranir safnast upp í fjármálum og innviðum sem nauðsynlegt sé að takast á við. Meðal helstu áherslna listans eru ábyrg fjármálastjórn, öflugir skólar, góð þjónusta við fjölskyldur og efling samfélagslífs.
Valdimar Tryggvi Kristófersson hjá Nespóstinum ræddi við Kristinn um framboðið og báráttuna sem framundan er.
Hver er Kristinn Ólafsson, geturðu sagt lesendum aðeins frá þér, bakgrunni þínum og tengingu við Seltjarnarnes? ,,Foreldrar mínir keyptu lóð á Seltjarnarnesi árið 1958. Þá voru þau barnlaus og lóðirnar á Nesinu meðal þeirra ódýrustu á höfuðborgarsvæðinu. Síðar eignuðust þau fimm börn og nýttist því vel að hafa byggt stórt hús,“ segir hann og heldur áfram. ,,Ég hef búið nánast alla ævi á Nesinu og ég og kona mín vorum svo heppin að geta keypt æskuheimili mitt. Ég gekk í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla og tók virkan þátt í íþrótta- og félagsstarfi frá unga aldri. Hjá Gróttu stundaði ég bæði fótbolta og handbolta auk þess að taka þátt í starfi skáta og KFUM. Síðar gekk ég í Björgunarsveitina Albert og hef verið virkur í björgunarsveitarstarfi í um 45 ár. Í dag er ég félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Það starf hefur mótað mig mikið og kveikt áhuga minn á útivist og fjallamennsku. Ég hef einnig fengið tækifæri til að stýra fjölbreyttum félögum og fyrirtækjum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar og síðar skátanna. Í þeim störfum hef ég unnið náið með fjölbreyttum hópi fólks og kynnst því hvað gott samstarf skiptir miklu máli.“
Alltaf haft skoðanir á nærsamfélaginu
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að hella þér út í bæjarpólitíkina og þiggja oddvitasæti Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra í komandi kosningum og úr hvaða armi kemur þú? ,,Ég hef alltaf haft skoðanir á mínu nærsamfélagi en ekki verið virkur í flokksstarfi. Hins vegar hef ég tekið þátt í félagsstarfi nær alla ævi. Þegar mér bauðst að taka þátt í þessu verkefni fannst mér það spennandi og krefjandi áskorun. Það sem skipti mig líka miklu máli var sá sterki hópur sem vildi taka þátt með mér. Ég kem inn fyrir Samfylkinguna, þar hefur hjarta mitt alltaf slegið, en þetta er fyrst og fremst breiður og samstilltur hópur fólks sem vill vinna saman að betra samfélagi á Seltjarnarnesi.“
Breidd hjálpar okkur að skilja ólík málefni
Nú er mikil nýliðun á lista ykkar og af átta efstu þá er það aðeins Sigurþóra Bergsdóttir núverandi bæjarfulltrúi sem var á listanum fyrir fjórum árum og hefur reynslu af bæjarmálunum. Er þetta áhyggjuefni eða jafnvel styrkur listans, nýtt og ferskt fólk? ,,Ég tel það klárlega vera styrk. Hér er kominn saman fjölbreyttur hópur með ólíka reynslu, menntun og sjónarhorn, auk þess sem aldursdreifingin er góð. Þessi breidd hjálpar okkur að skilja ólík málefni og nálgast þau frá fleiri hliðum og ekki síður að ná betur til fjölbreytts hóps bæjarbúa.“
Staðan á Seltjarnarnesi er erfið
En hvernig metur þú svo stöðuna á Seltjarnarnesi í dag, bæði hvað varðar fjármál, þjónustu og innviði? ,,Staðan á Seltjarnarnesi er erfið og það er mikilvægt að við horfumst í augu við það. Á síðustu tíu árum hefur uppsafnað tap bæjarins farið yfir þrjá milljarða króna. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að viðhald eigna hefur setið á hakanum og innviðaskuld er orðin veruleg. Í mörgum eignum bæjarins er verið að glíma við mygluvanda og enn sér ekki fyrir endann á þeim áskorunum. Félagsheimilið hefur staðið fokhelt frá árinu 2019 sem er mikill missir fyrir samfélagið þar sem félagsheimilið hefur verið hjarta félags- og menningarstarfs í bænum um langt skeið. Nýr leikskóli er nú í byggingu en sú framkvæmd er að stórum hluta fjármögnuð með lánum. Skuldahlutfall bæjarins var 122% árið 2024, sem er mjög hátt, og ljóst að áframhaldandi lántaka ein og sér leysir ekki vandann. Það er því nauðsynlegt að ráðast í heildstæða endurskoðun á rekstri bæjarins. Ef ekki er brugðist við með ábyrgum hætti er hætta á að sveitarfélagið missi tök á eigin fjármálum.“
Viljum byggja upp sjálfbæran rekstur
Hverjar verða helstu áherslur ykkar í kosningabaráttunni og hvaða breytingar viljið þið sjá á næsta kjörtímabili? ,,Helstu áherslur okkar eru ábyrgur rekstur, betri þjónusta við íbúa og lifandi og skemmtilegur bæjarbragur. Við viljum byggja upp sjálfbæran rekstur sem stendur undir lögbundnum verkefnum bæjarins og tryggir stöðugleika til framtíðar. Með skýrari forgangsröðun og ábyrgri fjármálastjórn viljum við skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Við leggjum ríka áherslu á að íbúar fái þjónustu sem mætir þeirra þörfum á hverjum tíma. Við viljum efla samfélagið og lífga upp á bæjarbraginn. Þar skiptir miklu máli að rækta það sem sameinar okkur, menningu, íþróttir og sterkt samfélag. Við viljum hlúa að þeim grunni og skapa tækifæri til aukins mannlífs þar sem íbúar geta komið saman og notið samveru. Við leggjum jafnframt mikla áherslu á virkt samtal við bæjarbúa. Við höfum þegar haldið opinn fund um rekstur bæjarins og munum halda fleiri slíka fundi á næstu vikum, þar sem við hlustum á það sem brennur mest á fólki, segir hann og hvetur íbúa til að taka þátt í opnum fundum í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju laugardaginn 11. apríl kl. 11:00 – Betri þjónusta við íbúa og þriðjudaginn 14. apríl kl. 17:00 – Lifandi og skemmtilegur bæjarbragur.
Seltjarnarnes er einstakur staður og hér er gott að búa
Seltjarnarnes fagnaði 52 ára afmæli í gær, fimmtudaginn 9. apríl. Hvernig finnst þér „afmælisbarnið“ hafa elst og dafnað, er gott að búa á Seltjarnarnesi og er framtíðin björt? ,,Seltjarnarnes er einstakur staður og hér er gott að búa. Náttúran er stórkostleg og samfélagið sterkt. Við höfum byggt upp gott samfélag fyrir alla aldurshópa, en til að svo megi áfram vera þurfum við að standa vörð um þjónustu við bæði fjölskyldur og eldri borgara. Það eru vissulega blikur á lofti í fjármálum bæjarins, en með skýrum aðgerðum og ábyrgri stjórn er hægt að snúa þróuninni við. Framtíð Seltjarnarness er björt ef við tökumst á við vandann af festu og ábyrgð núna,“ segir Kristinn að lokum.