Tökum ábyrgð hvert á öðru – hlúum að fólkinu sem byggði landið

Jónas

Samfylkingin kynnti á dögunum útspil sitt fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vorsól á Smáratorgi.

Útspilið er samstillt stefna Samfylkingarinnar á landinu öllu og er afrakstur nokkurra mánaða vinnu þar sem fulltrúar Samfylkingar hafa farið um land allt, frá Sandgerði til Kópaskers, drepið á dyr hjá íbúum og einfaldlega spurt: „Hvað getum við gert til að létta líf þitt?“

Undirritaður var formaður þess stýrihóps sem skipulagði vinnuna og skrifaði útspilið. Fólk hefur hvarvetna tekið okkur vel og er þakklátt fyrir tækifæri til að tala við okkur um áskoranir sínar í daglegu lífi. Með þessari vinnu sáum við sameiginleg stef um land allt og leggjum við fram sem stefnu okkar þrjú samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga: að lækka kostnað barnafólks, hlúa að fólkinu sem byggði landið og auðvelda reksturinn með því að einfalda regluverk og leyfisveitingarferli.

Yfirskrift útspilsins er „Tökum ábyrgð hvert á öðru“ og lýsir afstöðu jafnaðarmanna til samfélagsins: að okkur vegni best sem þjóð þegar við látum hvert annað varða og vinnum saman að stórum markmiðum. Útspilið er sett fram sem samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga því allt of lengi hefur lausn mikilvægra mála dregist því ríki og sveitarfélög hafa togað í mismunandi átt. Með útspilinu segjum við skýrt að fulltrúar Samfylkingarinnar í sveitarstjórn og fulltrúar Samfylkingarinnar við stjórn landsmálanna, hvort sem er á þingi eða ríkisstjórn, munu vinna saman að lausn þessara stóru málaflokka.

Hlúum að fólki í heimahúsi

Eitt af samstarfsverkefnunum er að hlúa betur að fólkinu sem byggði þetta land. Á vettvangi sveitarfélaganna ætlum við að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum. Til að tryggja eldra fólki og fjölskyldum þeirra örugga handleiðslu á efri árum stefnum við að því að bjóða samfellda þjónustu við eldra fólk með samþættingu heimaþjónustu, heimahjúkrunar og öldrunarráðgjafar sem fylgir þörfum hvers og eins, þar með talið fyrir heimilishjálp, félagsstarf, heilsueflingu, dagdvalir, iðju- og sjúkraþjálfun. Þannig nýtist kraftur sveitarfélagsins sem best til að styðja við virkni og grípa fólk fyrr sem þarf frekari þjónustu. Tillagan byggir á tilraunaverkefninu Gott að eldast, sem hefur vakið mikla og góða athygli, meðal annars í Mosfellsbæ. Í stað þess að eldra fólk og fjölskyldur þeirra þurfi að standa í hindrunarhlaupi til að sækja sér þjónustu frá aðilum sem tala ekki saman verður einn snertiflötur sem tryggir að þjónustan sé veitt í samfellu og eftir þörfum hvers og eins.

Klárum biðlista eftir hjúkrunarrýmum

Á vettvangi ríkisins, með dyggum stuðningi okkar sveitarstjórnarfólks um land allt, viljum við vinna áfram að því að eyða biðlistanum eftir hjúkrunarrými. Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum sem söfnuðust upp í tíð síðustu ríkisstjórnar verða helmingaðir fyrir 2027 og þeim svo gott sem eytt 2030, en þá er miðað við að biðlistinn verði kominn niður í 100 manns en að sá hópur fái biðrými sem hentar honum og að enginn bíði lengur en 90 daga. Skortur á hjúkrunarrýmum hefur verið ein stærsta áskorun íslensks samfélags undanfarin ár og því algjört forgangsatriði hjá Samfylkingu um land allt, í þágu eldra fólks sem á skilið mannsæmandi aðstæður á sínu ævikvöldi.

Stórar áskoranir krefjast stórra lausna. Með samstilltu átaki um land allt, þegar við þorum að stíga inn og taka ábyrgð hvert á öðru, eru okkur allir vegir færir. Samfylkingin ætlar sér stóra hluti og að hlúa að okkar eldra fólki, með virðingu fyrir sjálfstæði þess og mannlegri reisn, er einn af þeim. Hvort sem það er í heimahúsum eða á hjúkrunarheimilum. Um land allt, líka í Kópavogi.

Jónas Már Torfason. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og óskar Kópavogsbúum öllum gleðilegs sumars.