Verkin sýna merkin

Sagan geymir staðreyndir. Þar sýna verkin einfaldlega merkin.

Guðmundur Árni, Hafnarfjörður,
Guðmundur Árni Stefánsson Varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti í Hafnarfirði

Þessar einföldu staðreyndir er mikilvægt að hafa í huga þegar Hafnfirðingar, eins og landsmenn allir, ganga að kjörborðinu þann 16.maí næstkomandi.

Valkostirnir eru afar skýrir í Hafnafirði. Annars vegar að kalla Samfylkingina til verka og forystu, samhentan flokk jafnaðarmanna sem þekkir bæinn og fólkið í honum og hefur reynslu og þekkingu og kraft til að hefja nýja framfarasókn í bænum. Eða halda áfram með örþreyttan og uppgefinn meirihluta Sjálfstæðisflokksinns og Framsóknarflokksins.

Samfylkingin mætir til leiks í yfirstandandi kosningabaráttu með afdráttarlausa stefnu og verkefnaskrá, sem er raunsæ og verður framkvæmd. Hún byggir á málflutningi flokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar síðustu fjögur árin. Við höfnum þeirri pólitík að draga upp innistæðulítil og loftkennd loforð rétt fyrir kosningar. Jafnaðarmenn byggja á stefnu og skýrri sýn; við ætlum að gera hlutina, en ekki bara tala um þá.

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur það einfalda verklag, að það sem við segjum, það gerum við! Hratt og örugglega. Við munum láta verkin tala. Nokkur dæmi þar um segja þá sögu alla. Samfylkingin hefur lagt fram tugi tillagna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, sem velflestum hefur verið hafnað af meirihlutaflokkunum tveimur. Tillögurnar hafa að sjálfsögðu allar verið að fullu fjármagnaðar.

Samfylkingin hefur fimm sinnum lagt til að frítt verði í strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenn að 18 ára aldri og samhliða gert ráð fyrir fjármagni til þess. Jafnoft hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur fellt þá tillögu. Fái Samfylkingin nauðsynlegan stuðning í kosningunum í maí mun þetta umbótamál fyrir hafnfirsk ungmenni og fjölskyldur þeirra koma í framkvæmd 1.júlí næstkomandi.

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur ítrekað lagt til í bæjarstjórn að hefjast handa um byggingu lífsgæðaíbúða, þjónustuíbúða, fyrir eldra fólk í Hafnarfirði á Sólvangssvæðinu. Jafnoft hefur sú tillaga verið felld. Verði Samfylkingin ráðandi afl í stjórn bæjarins á komandi kjörtímabili, munu framkvæmdir við slíkt mannvirki hefjast ekki seinna en í október á yfirstandandi ári.


Samfylkingin mun hækka frístundastyrkin frá og með næsta hausti um 10
þúsund krónur, úr 65 þúsund krónum í 75 þúsund krónur.

Jafnaðarmenn munu einnig taka samgöngumálin föstum tökum eins og fjölmargar tillögur okkar bera með sér. Umferðarhnútinn á Reykjanesbraut, frá hringtorgi við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika, þarf að leysa og fara í þau mál af festu. Svipað vandamál er í uppsiglingu við Suðurhöfnina, nærri miðbæ. Þar þarf að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða nú þegar.

Ókláruð verkefnin í Hafnarfirði eru víða. Málefni fatlaðs fólks, húsnæðismálin, menningarmálin, tómstundir og íþróttir, grunnskólamálin og leikskólarnir. Nýja heilsugæslu staðsetta á Völlunum. Er þá aðeins fátt eitt talið.

Við vitum hvað þarf að gera og förum í verkin.

Jafnaðarmenn eiga sterkar rætur í Hafnarfirði. Þar sýna verkin merkin. Hafnfirðingar vita einfaldlega hvað jafnaðarmenn standa fyrir; öryggi, festu, jöfnuð, mennsku og áræðni. Öflugt atvinnulíf og þétt og gott velferðarkerfi vinna saman. Við gerum það sem við segjum. Við látum verkin tala.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.