Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ

Garðabær hefur alla burði til að veita fötluðu fólki fyrirmyndar þjónustu. Hér er gott samfélag, öflugt starfsfólk með faglega þekkingu og reynslu og bæjarsjóður sem fær dágóðar tekjur í gegnum skatta frá íbúunum
Samfylkingin vill forgangsraða í þágu velferðar og við viljum bæta þjónustu við fatlað fólk í bænum.
Samkvæmt lögum þá eiga sveitarfélög að hafa frumkvæði að því að kynna fötluðu fólki réttindi sín og leiðbeina um þá þjónustu sem þau eiga rétt á. Þetta á jafnt við um allt fatlað fólk, börn og fullorðna. Samfylkingin ætlar að beita sér fyrir bættri upplýsingamiðlun og aukinni skilvirkni í þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ.
Samfylkingin í Garðabæ leggur áherslu á samfellda, fjölbreytta og aðgengilega velferðar- og heilbrigðisþjónustu fyrir fatlað fólk í bænum. Einn liður í því er að samþætta heimaþjónustu sveitarfélagsins og heimahjúkrun og einfalda líf fólks með því að það geti leitað aðstoðar og upplýsinga um þjónustuna á einum stað.
Búsetumöguleikar
Uppbygging búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk er stöðugt verkefni sveitarfélaga. Ferlið frá hönnun til úthlutunar íbúða er langt og þó að nýlega hafi verið tekin skóflustunga að búsetukjarna í Hnoðraholti þá þarf strax að hefja vinnu við að hanna og byggja nýjan búsetukjarna í bænum. Ár hvert bætist í hóp þeirra fötluðu ungmenna sem þurfa slíka búsetuþjónustu hér í Garðabæ.
Við þetta bætist að í Garðabæ hefur uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir tekjuminna fólk alls ekki verið nægilega vel sinnt. Sú staðreynd bitnar ekki síst á ungu fólki sem vegna fötlunar, veikinda eða annarra áfalla hefur ekki haft tækifæri til að afla launatekna og býr því við erfið kjör. Samfylkingin í Garðabæ mun á næsta kjörtímabili beita sér fyrir því að óhagnaðardrifin leigufélög fái byggingarlóðir í bænum því úr þessu þarf að bæta sem allra fyrst.
Það er mikið réttlætismál fyrir fatlað fólk og fjölskyldur þeirra að þurfa ekki að vera á biðlista árum saman eftir því að geta eignast sitt eigið heimili og fá þjónustu í samræmi við þarfir, sem eru sjálfsögð mannréttindi
Tækifæri og þátttaka
Samfylkingin vill að komið verði á fót virkni- og hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Garðabæ sem taki mið af þarfagreiningu sem unnin verði í samstarfi fagfólks, hagsmunasamtaka, fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra. Virkni og þátttaka bæta líf okkar allra en fatlað fólk mætir fjölmörgum hindrunum fyrir því að taka virkan þátt í samfélaginu. Garðabær er fimmta stærsta sveitarfélag landsins með yfir 20 þúsund íbúa og hefur alla burði til að reka virkni- og hæfingarstöð fyrir þá íbúa sem á þurfa að halda. Það er siðferðileg skylda samfélagsins að skapa umhverfi og aðstæður sem gera fötluðu fólki mögulegt að vera virkir þátttakendur í nærsamfélaginu og við getum gert miklu betur í Garðabæ.
Samfylkingin ætlar að beita sér fyrir því að þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ verði með því besta sem þekkist. Við erum tilbúin, komdu með og settu X við S á kjördag.
Höfundur skipar 10.sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ.