Eflum þjónustu við börn í Kópavogi

Í dag eru yfir hundrað börn sem bíða eftir stuðnings- og stoðþjónustu í Kópavogi. Þessi bið getur tekið vikur, mánuði og í sumum tilvikum jafnvel ár.
Fyrir barn sem bíður eftir nauðsynlegri og lögbundinni þjónustu, hvort sem að það er stoðþjónusta á borð við meðferð hjá talmeinafræðingi, sérkennslu eða önnur einstaklingsmiðaðri stuðningsþjónusta á borð við aðstoð í bekk, þá skiptir þessi tími sem fer í bið miklu máli þegar kemur að velferð og líðan barnsins á viðkvæmu þroskaskeiði.
Við þekkjum líklegast öll einhvern sem hefur beðið eftir stoð- eða stuðningsþjónustu. Ég þekki sjálf þessa bið af eigin raun en barnið mitt beið eftir aðstoð talmeinafræðings á vegum sveitarfélagsins í tæp fjögur ár. Þeir sérfræðingar sem starfa hjá sveitarfélaginu anna ekki þeim fjölda barna sem að þurfa á meðferð hjá talmeinafræðingi að halda en ég upplifði jafnframt að kerfið gæti verið skilvirkara og hraðvirkara. Það jók svo líka álagið og dró úr tiltrú manns á kerfinu að þurfa stanslaust að ýta á eftir þjónustu sem að ætti að vera sjálfsögð.
Styttum biðlista
Kópavogur er fjölmennt sveitarfélag með margar skólastofnanir og hér býr fjölbreyttur hópur barna. Það kemur oft í ljós í skólanum að barn þurfi meiri stuðning eða þjónustu af einhverju tagi. Bæði í leikskólum og grunnskólum bæjarins starfar öflugt fagfólk sem greinir þörf fyrir stuðning en tilvikunum þar sem þörf er á stuðningi fer fjölgandi og þau eru oft flóknari úrvinnslu en áður. Stór hluti af vandanum er að börnin eru mörg og vandinn oft flókinn. Farsældarlögin sem gera skýra kröfu á að börn fái samþætta þjónustu án hindrana í gegnum einn tengilið hafa aukið álagið á velferðarkerfið okkar en þau bjóða jafnframt upp á lausn á vandanum. Hér er mikilvægt að við forgangsröðum rétt og að við höfum eina heildarsýn á velferð barna og ungmenna en skiptum þessu ekki niður í annars vegar velferðarmál og hins vegar menntamál.
Fjölgum fagfólki innan skólanna
Samfylkingin vill styrkja kerfið í heild sinni. Við viljum fjölga fagfólki innan skólanna til að stytta biðlista og vera í stakk búin til að grípa börn sem þurfa þjónustu fyrr. Hér erum við að horfa til þess að fjölga talmeinafræðingum, atferlisfræðingum og sálfræðingum sem starfa innan skólanna. Jafnframt viljum við ráða inn félagsráðgjafa í skólana til að sinna þeim börnum þar sem að aðstæður kalla á meira samstarf milli skóla og heimilis. Þetta mun létta á álaginu sem hefur myndast í skólakerfinu og veita kennurunum nauðsynlegan stuðning og rými til að sinna kennslunni í skólastofunni.
Fjárfestum í þjónustu við börn
Við þurfum líka að horfa sérstaklega til þeirra barna sem hafa flóknari stuðningsþarfir. Það er mikilvægt að þau fái viðeigandi þjónustu sem að mætir þeirra þörfum að fullu og að það sé án þess að þurfa að bíða lengi eða flytjast milli úrræða. Það kallar á markvissa uppbyggingu og fjárfestingu frá sveitarfélaginu í sérúrræðum og að við skoðum nýjar leiðir. Samhliða þessu þarf að fjölga plássum í sérdeildum en í dag komast mun færri börn að þar en sækja um.
Í okkar huga er aðalatriðið skýrt. Börn eiga ekki að bíða eftir því að kerfið virki og líða fyrir vonda forgangsröðun hjá núverandi meirihluta. Með skýrum verkferlum og fleira fagfólki inni í skólanum getur Kópavogur tryggt þjónustu sem nær til barnanna á réttum tíma og styður þannig við börn, fjölskyldur og skólasamfélagið í heild sinni.
Eydís Inga Valsdóttir.
Höfundur skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi