Einföldum líf barnafjölskyldna

Á síðasta kjörtímabili í Kópavogi hækkuðu leikskólagjöld um 62% fyrir átta tíma vistun.
ASÍ og BSRB hafa birt samantekt sem sýnir glögglega að breytingar á leikskólakerfinu hafa flækt líf barnafjölskyldna þar sem greiðsluþátttaka þeirra þyngist verulega.
Forsvarsmenn félaganna hafa einnig skrifað grein um þessa varhugaverðu þróun. Á síðasta kjörtímabili í Kópavogi hækkuðu leikskólagjöld um 62% fyrir átta tíma vistun. Samfylkingin hefur verið skýr í sínum málflutningi fyrir komandi kjörtímabil og vill létta daglega lífið og einfalda líf barnafjölskyldna með því að lækka álögur á barnafólk, án þess að gefa nokkurn afslátt af mikilvægi bættra starfsaðstæðna kennara og starfsfólks.
Við höfnum 450 þúsund króna barnaskattinum í Kópavogi, eins og við Dagbjört Hákonardóttir sögðum skýrt í grein hér á Vísi í byrjun vikunnar. Formaður Eflingar tók sér tíma og svaraði grein okkar, en eyddi þó nokkru púðri í að halda því fram að gagnrýni okkar hafi fyrst og fremst snúist um að tekjuhátt fólk í Kópavogi þurfi nú að greiða fyrir leikskólaþjónustu. Í því ljósi er mér bæði ljúft og skylt að skýra betur, að gagnrýni okkar snýst alls ekki um það.
Lágtekjufólk fær líka að finna fyrir barnaskattinum
Kostnaðurinn leggst líka mjög þungt á venjulegar fjölskyldur, einstæða foreldra og verkafólk og þar á meðal félagsfólk Eflingar sem býr í Kópavogi. Þessar gjaldskrárhækkanir eru þvert á gefin loforð sveitarfélaga sem gefin voru í tengslum við kjarasamningagerð 2024 um að halda kostnaði í lágmarki fyrir barnafjölskyldur og viðkvæma hópa.
Vissulega eru tekjutengdir afslættir í boði í Kópavogi, en þeir eru mun lakari en í mörgum öðrum sveitarfélögum. Þar munar sérstaklega miklu um systkinaafslætti og hvernig gjaldskrárnar eru byggðar upp.

Til að sýna þetta tók ég saman dæmi um tvær einstæðar mæður. Önnur starfar við ræstingar og er með 500 þúsund krónur á mánuði í laun fyrir skatt. Hin starfar sem millistjórnandi hjá ríkinu með 1,5 milljónir króna í laun fyrir skatt.
Tölurnar sýna skýrt hversu þung þessi gjöld geta orðið.

Eydís Inga Valsdóttir, 2. sæti Samfylkingar í Kópavogi