Eldmóður í bland við reynslu – Sterk liðsheild Samfylkingarinnar

Reynsla og eldmóður, þetta eru mikilvæg hráefni í góðan framboðslista. Kjósendur hafa nefnilega að mörgu að hyggja þegar kjörseðilinn er kominn í hendurnar.
Í því samhengi langar mig að ræða þessi mikilvægu atriði; kraftinn í nýju fólki og þekkingu þeirra sem hafa reynsluna. Þetta er blandan hjá okkur í Samylkingunni í Garðabæ.
Úthald og reynsla
Í efri hluta listans okkar má finna marga reynslumikla frambjóðendur. Í sjötta sætinu er þingmaður til margra ára í Katrínu Júlíusdóttur, sem var bæði fjármála- og efnahagsráðherra og iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Sem fjármálaráðherra hóf Katrín vegferðina að gera ríkisbókhaldið aðgengilegt almenningi. Reynsla Katrínar í þessum efnum mun vega þungt þegar kemur að stefnumáli okkar um að opna bókhald Garðabæjar og veita bæjarbúum tækifæri á að sjá í hvað skattgreiðslur þeirra fara.
Á listanum má einnig finna Ragnheiði Hergeirsdóttur, fyrrum bæjarstjóra Árborgar. Hún beitti sér fyrir innleiðingu á ýmsum nýjungum í þjónustu við eldri borgara sem bæjarstjóri, sem er í takti við stefnumál okkar í Samfylkingunni. Ragnheiður var einnig framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Suðurlands í málefnum fatlaðra og hefur undanfarin ár byggt upp og leitt nýja námsleið við HÍ í farsæld barna. Reynsla hennar í þessum málaflokkum er okkur ómetanleg.
Við getum einnig nefnt Guðfinnu Guðmundsdóttur, sem var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um árabil og hefur gengt hinum ýmsu trúnaðarstörfum. Hún þekkir verkefni bæjarstjórna út og inn. Vilmar Pétursson er í fjórða sætinu. Hann var lengi vel mannauðsstjóri Vinnumálastofunnar og var einnig ráðgjáfi hjá Capacent. Þar fer maður með góða reynslu sem mun nýtast bæjarbúum vel.
Eldmóðurinn
Á lista okkar í Samfylkingunni má að sama skapi finna nýliða í sveitarstjórnmálum, sem koma með annars konar reynslu að borðinu. Annað sætið skipar Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, en hún er fjármálastjóri stórfyrirtækis og hefur mikla reynslu í heimi fjármála. Rakel Viggósdóttir, deildarstjóri hjá Álftanesskóla, er í þriðja sæti og hefur mótað hugmyndir Samfylkingarinnar í málefnum skóla Garðabæjar ásamt Rósönnu Andrésdóttur, kennara í Garðaskóla. Ástríða þeirra fyrir skólamálum er bráðsmitandi, auðvelt er að hrífast með! Talandi um eldmóð, hann er heldur betur að finna í Ögmundi Árna Sveinssyni. Þessi 23 ára uppaldi Garðbæingur og viðskiptafræðinemi hefur gert frábæra hluti sem yngri flokka þjálfari í körfubolta hjá Stjörnunni. Öddi þráir ekkert heitar en að geta búið áfram í Garðabæ þegar hann flytur að heiman og smitar okkur af eldmóði sínum í uppbyggingu á húsnæði fyrir ungt fólk í bænum.
Stefnumál Samfylkingarinnar í Garðabæ eru raunsæ og vel framkvæmanleg. Við bjóðum fram úrvalslið frambjóðenda sem hefur beina reynslu af því að innleiða margt af því sem við viljum gera í Garðabæ. Traust fjármálastjórn og opið bókhald, forgangsröðun í þágu barnafjölskyldna og eldri Garðbæinga, breytingar málefnum fatlaðra til hins betra og bætt umgjörð í skólamálum er meðal þess sem við tölum fyrir. Við höfum getuna til að ná fram raunverulegum framförum og erum tilbúin að ganga í verkin.
Kjartan Atli Kjartannsson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ