Náttúrulaust Ölfus?

Ölfus er gríðarlega stórt með miklum náttúrugæðum, enn þá, og hér erum við að tala um  landslag,  kaldavatnsauðlindir, jarðhita, ströndina og útivistarmöguleika.

Nú þegar eru mikið röskuð svæði eins jarðefnanámur og orkuvinnslusvæðin á og við Hellisheiðina. Ég er ekki á móti námavinnslu eða orkuvinnslu heldur tel ég kominn tími á að staldra við og skoða hvað og hvar við viljum vernda náttúruna. Orkufyrirtækin vilja eðlilega virkja, Orkuveitan er nú þegar með gríðarstórt svæði undir sem er Hengilssvæðið, Hellisheiðin / Hverahlíðin. Nú er framundan hjá OR að fara upp á Norðurhálsa sem er milli Hverahlíðar og Skálafells, þá er það nýjasta sem er að fara austur og suður með Meitlunum. Svo ætlar Reykjavík Geothermal ehf  fara í svokallaða „Bolaölduvirkjun“, sem er rangnefni og ætti frekar að kalla Bláfjallavirkjun þar sem fyrirhugað virkjunarsvæði er við Fjallið eina sem er beint norður af Geitafelli og því munu fylgja borteigar vítt og breytt á þessu ósnerta svæði. Svo er einnig virkjunaráhugi á Ölkelduhálssvæðinu og framan við dalina ofan við Hveragerði þ.e. Reykjadal og Grændal. Bendi á að það fyrir liggur að moka í burtu Litla Sandfelli sem er lítið fjall í fjallasal Ölfuss en sá gjörningur er stórt inngrip í náttúruna.

Jú af hverju nefni ég þetta. Við erum með Skipulags- og umhverfisnefnd en varla er hægt tala um umhverfisnefnd því skipulagsnefnd er eðli málsins framkvæmdadrifin og umhverfismálin detta út af borðinu. Skýrt dæmi um þetta er landfyllingin sem eyðilagði eitt besta brimbrettasvæði Íslands. Það er ekki fjallað sérstaklega um umhverfið sem náttúru sem ber að vernda.

Ég er áheyrnarfulltrú Íbúalistans á fundum Skipulags- og umhverfisnefndar og á fundi nr. 110 bókaði ég við mál nr. 2, þann 23. mars 2026, eftirfarandi:

Engin heildarsýn liggur fyrir á Hellisheiðarsvæðinu í því hversu langt á að ganga í að vaða yfir náttúru svæðisins. Er kominn tími á málstofu um hverju eigi að fórna, hvort eigi að skilgreina Hellisheiðarsvæðið í heild sinni sem orkuvinnslusvæði, frá Bláfjöllum í vestri, Skálafell með Norður- og Suðurhálsum, Stóra- og Litla Meitli og Henglinum, eða ekki? Ég velti fyrir mér hvort að baráttan fyrir náttúrunni á þessu svæði sé töpuð.

Já það er full þörf á að skoða heildstætt hvaða náttúrusvæði við viljum alls ekki raska og hvar verði gefið eftir, vil sjá að umhverfismálin verði tekin fyrir í Umhverfisnefnd sem verði aðskilin frá Skipulagsnefndinni. Í umhverfisnefnd rúmast einnig efnistökin hvaða áhrif skipulag hafi á lífsgæði íbúa þ.e. birta, áhrif svifryks, umferðar og umferðaröryggi, vindmyllur, afsetning iðnaðarúrgangs og lyktarmengun svo eitthvað sé talið upp. Skipulagsmálin og þar með talin náttúran eru á ábyrgð sveitarfélagsins.

Guðmundur Oddgeirsson
14. sæti á lista Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi