Takk fyrir traustið, kæru Kópavogsbúar

Við í Samfylkingunni í Kópavogi höfum síðastliðnar vikur og mánuði átt í virku samtali við íbúa Kópavogs.
Það hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi að hlusta á og ræða við alla þá einstaklinga og hópa sem treystu okkur fyrir hugmyndum sínum, áhyggjum og upplifunum af þjónustu sveitarfélagsins. Bæði því sem er gott og því sem betur má fara í Kópavogi.
Undir forystu Kristrúnar Frostadóttur hefur Samfylkingin breikkað sig og snúið sér að því sem skiptir Íslendinga máli í þeirra daglega lífi. Flokkurinn er og verður áfram burðarás í íslenskum stjórnmálum. Það urðu kynslóðaskipti í forsvari Samfylkingar í aðdraganda kosninga og voru 18 af 19 oddvitum flokksins á landsvísu nýliðar. Þrátt fyrir sögulega hægrisveiflu á sveitarstjórnarstigi fékk Samfylkingin næstmest fylgi allra flokka og bætti við sig 10 sveitarstjórnarfulltrúum um land allt.
Samfylking er sterk í Kópavogi
Hér í Kópavogi er niðurstaðan sú að flokkurinn vel rúmlega tvöfaldaði fylgi sitt og hlaut sína bestu kosningu í 16 ár eða tæp 19%. Er það mesta fylgi allra framboða Samfylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Undirrituð hlutu því bæði kjör í bæjarstjórn og metum þessa niðurstöðu mikils. Við erum bæði þakklát fyrir stuðninginn og auðmjúk fyrir verkefninu. Við munum ekki skorast undan áskoruninni og munum takast á við okkar hlutverk af virðingu og alúð.
Nú hefst það mikilvæga verkefni að tala fyrir okkar áherslum og málefnum í minnihluta í bæjarstjórn. Sem stærsti flokkurinn í þeim minnihluta munum við veita þétt aðhald. Við munum alltaf veita kröftuga mótstöðu við hægri pólitík sem kemur niður á venjulegu vinnandi fólki, gerir daglegt líf erfiðara og kemur niður á jöfnuði í samfélaginu.
Pólitík jafnaðarmanna
Í okkar kosningabaráttu horfðum við til framtíðar og lögðum áherslu á ákallandi stefnubreytingar í Kópavogi. Að tryggja að hér verði áfram rými fyrir fólk á vinnandi aldri til að festa rætur og stofna fjölskyldu, en fólki á barneignaraldri fækkar nú í fyrsta sinn í sögu bæjarins. Með lækkandi hlutfalli vinnandi fólks í bænum er hætt við að það muni reynast sveitarfélaginu um megn að veita áfram viðunandi grunnþjónustu. Þar munar mestu um fjölbreytta uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og þjónustu við barnafjölskyldur. Að létta líf fjölskyldna með lægri álögum, meiri stuðningi fyrir börnin okkar inni í skólunum og að skorast ekki undan að veita lögbundna þjónustu til þeirra sem á henni eiga rétt.
Í ljósi hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar, þar sem Kópavogur sker sig úr í samanburði við önnur sveitarfélög, töluðum við fyrir því að hugsa betur um eldra fólk í bæjarfélaginu. Ef Kópavogsbæ á að takast að veita fjölgandi eldri borgurum mannsæmandi þjónustu þarf að horfa til framtíðarinnar strax. Leggja þarf áherslu á líkamlega og félagslega virkni til að lágmarka fjölda einstaklinga með mikla stuðningsþörf. Eins þarf að stórefla heimaþjónustu, svo fólk geti búið sem lengst á eigin heimili, og samþætta hana við heimahjúkrun og aðra öldrunarþjónustu. Til að tryggja að kerfið brotni ekki undan biðlistum þarf að ráðast í uppbyggingu á þjónustukjörnum og hjúkrunarrýmum.
Pössum upp á bæinn okkar
Við munum standa keik með íbúum Kópavogs og passa upp á bæinn okkar eins og við þekkjum hann í dag. Að skapa heildarsýn fyrir skipulagsmál, tala gegn óhóflegum þéttingaráformum og vernda græn svæði og þá náttúru sem við eigum hér saman. Líta áfram til framtíðar og leggja línur að því að liðka fyrir vistvænni umferð bæði gangandi og hjólandi. Það er tímabært að Kópavogur snúi sjónum sínum inn á við í skipulagsmálum.
Trygg búseta fyrir venjulegt vinnandi fólk er jafnframt lykillinn að jöfnuði í samfélaginu og við munum beita okkur fyrir því að í Kópavogi rísi bæði íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga sem og íbúðir fyrir námsmenn. Til að sveitarfélagið okkar verði áfram þróttmikið þarf að huga að rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hér munar um mestu að létta á ferlum og regluverki, auka við þjónustu og sjá til þess að hvert fyrirtæki hafi einn viðkomustað hjá sveitarfélaginu.
Til þjónustu reiðubúin
Við elskum að búa í Kópavogi. Hér er gott að vera og sveitarfélagið býr yfir einstakri nálægð við náttúru, fjölbreyttri þjónustu, öflugu mannlífi, blómstrandi menningu og íþróttaaðstöðu í heimsklassa. Við þökkum aftur kærlega fyrir traustið og hlökkum til að taka samtalið, leysa vandamál ykkar í daglegu lífi og starfa með þarfir íbúa Kópavogs að leiðarljósi. Samfylkingin er mætt til leiks í Kópavogi og er til þjónustu reiðubúin.
Greinin birtist í Kópavogspóstinum 21. maí 2026.
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar og bæjarfulltrúi og Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar.