Eldhúsdagsumræður: Jóhann Páll

Virðulegi forseti, góðir landsmenn. Það er bjart úti, það er sumar í loftinu og margt sem gengur vel.

Mér heyrist formaður Sjálfstæðisflokksins vera kominn með hausinn út til Brussel, en við skulum hafa það algerlega á hreinu að það er í höndum þjóðarinnar, ekki okkar hér inni, að ákveða hvort farið verði í þá vegferð. Við skulum treysta þjóðinni til að svara þeirri spurningu og við fáum rétt svar, hvort sem það verður já eða nei.

Ísland er frábært land, en við vitum öll að það er margt sem má er hægt að gera betur. Við vitum líka að það er margt sem gekk ekki alveg nógu vel á síðustu árum, sem við erum að laga núna. Og um þetta snúast stóru málin á þessu löggjafarþingi. Að styrkja Ísland.

Við gerum það með nýrri samgönguáætlun, með innviðafélagi og stórauknum framlögum til viðhalds á vegum um allt land. Þetta er ekki sóun á fjármunum. Það er atvinnumál, byggðamál og öryggismál. Þetta er góð ráðstöfun á ríkisfé.

Við styrkjum Ísland með því að höggva á hnúta í orkumálum, ryðja burt hindrunum í málaflokki sem ræður einna mestu um verðmætasköpun, framleiðni og lífskjör hér á Íslandi til næstu áratuga.

Þess vegna einföldum við regluverk. Þess vegna gerðum við það sem þurfti að gera til að koma Hvammsvirkjun áfram, þess vegna eyddum við óvissunni í raforkumálum Norðausturlands og núna á Vestfjörðum líka. Um leið setjum við strangari reglur um vindorku, þó það nú væri. Það er löngu tímabært, og við lækkum raforkureikninginn í dreifbýli og á köldum svæðum. Þetta er jafnaðarmennska í orkumálum, og hún fer fullkomlega saman við kraftmikla náttúruvernd.

Allt tengist þetta svo líka atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar: hún snýst um að hverfa frá hagvexti sem byggði á fjöldainnflutningi vinnuafls en beina frekar sjónum að háframleiðnigreinum vaxtarbroddum sem byggja á styrkleikum Íslands og geta staðið undir íslenskum kjörum og íslenskri velferð.

Við styrkjum Ísland með því að koma styrkri stjórn á útlendingamálin og tryggja öruggari landamæri. Við styrkjum Ísland með fjölgun lögreglumanna og fumlausum aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Og svo er það ríkisreksturinn.

Virðulegi forseti.

Þar stöndum við frammi fyrir verkefni sem kallar á stefnufestu og úthald.

Á einu og hálfu ári höfum við lækkað skuldir ríkisins um meira en 7% af vergri landsframleiðslu, við höfum fækkað ríkisstofnunum um 5% nú þegar og stefnum að 15% fækkun á kjörtímabilinu, við höfum hrint í framkvæmd umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum, lánshæfismat ríkisins hefur hækkað og lánakjör batnað.

Það breytir því ekki að verðbólga er enn of mikil og vextir eru allt of háir, en einmitt þess vegna verðum við að halda kúrs. Þess vegna megum við aldrei láta undan kröfunum sem heyrast frá stjórnarandstöðunni hér í þessum sal um að horfið verði aftur til þeirrar efnahagsstefnu og þeirrar óstjórnar sem kom okkur í þessa stöðu til að byrja með.

Hvað gerðist hér á síðasta kjörtímabili þegar olíuverð rauk upp eftir innrás Rússlands í Úkraínu? Þá var almenningur látinn taka hækkanirnar á kassann. Og á sama tíma varla gerð minnsta tilraun til að beita ríkisfjármálum til sveiflujöfnunar. Verðbólga rauk upp í 10 prósent og stýrivextir upp í 9,25 prósent.

Núna blasir við allt önnur mynd og allt önnur nálgun. Þegar olíuverð hækkar vegna stríðsátaka við Hormuz-sund, þá lækkum við verðið á dælunni, og tryggjum með lögum að lækkunin skili sér til almennings.

Og við hvikum hvergi frá stefnunni um hallalaus fjárlög árið 2027. Það er sú lækning sem hagkerfið okkar þarf, sem fyrirtækin og heimilin í landinu þurfa.

Meðalið er ábyrgur ríkisrekstur eftir áratug af lausatökum. Meðalið getur verið vont á bragðið á meðan við erum að taka það inn, það þrengir að og hagkerfið er að kólna, en þetta er forsenda þess að við náum nýju jafnvægi, að við sköpum forsendur til vaxtar og verðmætasköpunar, til þess einmitt að byggja sterkara velferðarþjóðfélag á Íslandi.

Við styrkjum Ísland með stórfelldri uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þannig léttum við á bráðamóttöku og heilbrigðiskerfinu um land allt. Við hækkuðum frítekjumark og festum lífeyri við laun, við lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks við erum að laga húsnæðismarkaðinn, hemja verðhækkanir, liðka fyrir uppbyggingu…

Þetta er bara brot af þeim stóru verkefnum sem ríkisstjórnin hefur fengist við hér heima. En við styrkjum líka Ísland með því að treysta þjóðinni og standa við gefin loforð um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um mögulegt framhald viðræðna við Evrópusambandið. Við erum stolt af þeirri lýðræðislegu nálgun, og það kemur rétt svar. Sama hvort það verður já eða nei þá fáum við rétt svar og við skulum, í guðanna bænum, virða niðurstöðuna hvar í flokki sem við stöndum.

Forseti. Þegar við lítum yfir sviðið, þá blasir við að undir verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekist að blása nýju lífi í stjórnmálin og stjórnkerfið á Íslandi. Við höfum hrist rækilega upp í kerfinu til þess að það virki fyrir venjulegt fólk.

Þar sem áður var deyfð og doði er nú framtak og verkgleði. Þar sem áður voru lausatök og linkind, þar er nú stefnufesta og framtíðarsýn. Þar sem áður voru endalausir starfshópar og stýrihópar og skýrslur eru nú beinharðar aðgerðir, sem fólk sér og finnur fyrir.

Þetta skiptir máli fyrir Ísland. Þetta skiptir máli fyrir traust og tiltrú lýðræðisins í landinu. Og hvar sem fólk í flokki stendur þá hljótum við að geta fagnað þessu og unnið hér saman, þvert á flokka, að sterkara Íslandi fyrir okkur öll.