Umræða um stefnuræðu - Alma Möller

Síðastliðin áramót tók ég þátt í kosningu um orð ársins og kaus orðið innviðaskuld - og það ekki að ástæðulausu. Undanfarna áratugi hefur myndast mikil innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu sem endurspeglast í skorti á starfsfólki, húsnæði, tækjakosti og rafrænum kerfum ásamt löngum biðlistum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur heitið því að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt.
Á síðastliðnu ári var geðheilbrigðisþjónusta og fíknimeðferð efld til muna. Þjóðarátak í umönnun eldra fólks hófst og kyrrstaða í uppbyggingu hjúkrunarheimila var rofin, svo um munar. Það endurspeglast í betri stöðu á Landspítala.
Áfram er unnið að því markmiði að fá fastan markmiði um heimilislækni fyrir alla. Árangur hefur þegar náðst en verkefnið mun taka tíma því hér vantar á annað hundrað heimilislækna. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja myndarlega við sérnám lækna.
Áhersla er á nýtingu tækni og gervigreindar, stafræna þróun og nýsköpun hvar sem við verður komið. Um það höfum við stofnað sérstaka einingu, Stafræna heilsu. Þá er verið að stíga fyrstu skrefin inn í framtíðina með hagnýtingu erfðaupplýsinga. Þessar áherslur endurspeglast í þingmálaskrá.
En verkefnalistinn er lengri; mönnun og menntun heilbrigðisstétta, aukið aðgengi að heilsugæslu og þjónustu, ekki síst á landsbyggðinni, heilbrigðisviðbúnaður, endurhæfing, uppbygging húsnæðis og margt fleira.
Frú forseti.
Eitt mikilvægasta og arðbærasta verkefni hvers samfélags er að hlúa að börnum, þau eru framtíð þjóðar og fjársjóður. En, það eru blikur á lofti. Fleiri börn og ungmenni greina frá depurð, kvíða og einmanaleika. Við sjáum líka hegðunarvanda, ofbeldi og fíkn.
Börn eiga ekki að bíða eftir þjónustu. Þess vegna hefur stytt bið eftir greiningu og meðferð verið forgangsverkefni hjá mér frá fyrsta degi. Þar eru mörg flókin og tímafrek verkefni undir, en árangur er í augsýn.
Við höfum heyrt átakanlegar sögur barna sem orðið hafa fyrir ofbeldi. Nú í haust hefst skimun í grunnskólum til að ná til barna sem þarfnast stuðnings í kjölfar ofbeldis. Þau munu svo fá viðeigandi þjónustu í Bryndísarhlíð sem opnar í febrúar og hjá nýju áfallateymi barna á Landspítala.
En vaxandi vandi verður ekki leystur með meðferðarúrræðum einum og sér, við verðum að ráðast að rótum vandans og snúa þróuninni við. Líkur eru á að þar skipti notkun net- og samfélagsmiðla miklu, einnig óhollir lifnaðarhættir eins og of lítil hreyfing, óhollt mataræði, orkudrykkir, nikótínvörur og aukið aðgengi að áfengi og vímuefnum. Mín þingmál snúa meðal annars að lýðheilsu barna og vörnum gegn nikótíni.
Munum líka að við fullorðin erum fyrirmyndir hvað alla þessa þætti varðar, börnin gera ekki eins og við segjum, þau gera eins og við gerum.
Almennt mælast einkenni vanlíðunar meiri hjá börnum sem telja fjölskyldu sína búa við slæma fjárhagslega stöðu. Ég er stolt af að starfa í ríkisstjórn sem vill útrýma fátækt og styðja við þau sem höllustum fæti standa.
Ríkisstjórnin hyggst ráðast í samstillt átak til að efla heilsu og velsæld barna og ungmenna en það er ljóst, frú forseti, að vandann þarf að leysa með samfélaginu öllu.
Nelson Mandela sagði, með leyfi, að það hvernig samfélag kemur fram við börn sín, endurspeglar sál þess.
Góðir landsmenn.
Nú er Gulur september, vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Látum okkur líðan náungans varða, þorum og lærum að tala um andlega líðan; samtal getur bjargað lífi.
Virðulegi forseti.
Ég hlakka til komandi þingvetrar og að starfa í þágu lands og þjóðar með gildi okkar jafnaðarmanna að leiðarljósi!
Góðar stundir.