Guðmundur Ari nýr varaformaður

Guðmundur Ari Sigurjónsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar.

Guðmundur Ari Sigurjónsson hefur verið kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands. Guðmundur Ari var sjálfkjörinn á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer í Suðurnesjabæ.

Guðmundur Ari tekur við af Guðmundi Árna Stefánssyni, sem baðst lausnar frá embætti varaformanns fyrr á árinu og kvaddi flokksstjórn Samfylkingarinnar með ræðu á fundinum í dag.

Því næst hélt Guðmundur Ari ræðu þar sem hann fór yfir þær áherslur sem hann ætlar að beita sér fyrir næstu árin, sem varaformaður Samfylkingarinnar. Hann sagði meðal annars að hann teldi að varaformaður ætti að leggja krafta sína í að rækta flokkinn, tengja fólkið okkar saman og byggja hreyfinguna upp fyrir næstu kosningar og að sá undirbúningur eigi að hefjast strax.

„Við jafnaðarmenn vitum að baráttan fyrir almannahagsmunum er öðruvísi en baráttan fyrir sérhagsmunum. Sterkir sérhagsmunir verja gríðarlegum fjármunum í að verja sína stöðu.

En baráttan fyrir almannahagsmunum þarf að byggjast á öflugri fjöldahreyfingu og samstöðu fólksins í landinu. Því þurfum við púls í félögunum okkar um allt land,“ sagði Guðmundur Ari.

Guðmundur Ari er 38 ára gamall og var kjörinn á þing árið 2024 fyrir Suðvesturkjördæmi. Hann er Seltirningur og sat í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 2014-2024, auk þess sem hann var formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar á árunum 2022-2025 og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 2018-2024. Guðmundur Ari hefur verið þingflokksformaður Samfylkingarinnar á þessu kjörtímabili.

Hann er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og starfaði lengi við æskulýðsmál á Seltjarnarnesi, meðal annars sem forstöðumaður. Einnig hefur hann sinnt stundakennslu í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og starfaði sem sérfræðingur hjá Rannís áður en hann var kjörinn á Alþingi.

Guðmundur Ari er giftur Nönnu Kaaber Árnadóttur og eiga þau saman þrjú börn.