Ný stjórn sveitarstjórnarráðs kjörin á aðalfundi

Árni Rúnar Þorvaldsson hlaut áframhaldandi kjör sem formaður Sveitarstjórnarráðs.
Aðalfundur Sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar var haldinn föstudaginn 9. október sl. Formaður fór yfir skýrslu stjórnar þar sem farið var yfir starf ráðsins frá síðasta aðalfundi sem haldinn var í mars 2025. Starf ráðsins markaðist auðvitað mest af undirbúningi sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru í maí sl. Formaður fór yfir niðurstöður kosninganna og stöðu Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarstiginu í kjölfar þeirra.
Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, gaf áfram kost á sér til formennsku í sveitarstjórnarráði og var kjörinn formaður á fundinum. Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, var kjörin gjaldkeri og hún kemur ný inn í stjórn. Ritari var kjörinn Stefán Þór Eysteinsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð. Varamenn voru kjörin þau Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og Kjartan Páll Þórarinsson, bæjarfulltrúi í Norðurþingi, sem kemur nýr inn í stjórn. Úr stjórn gengu þau Guðný Maja Riba fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík og núverandi varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og Benóný Valur Jakobsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Norðurþingi. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra störf í þágu Sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar.
Í síðustu kosningum fjölgaði S-lista framboðum Samfylkingarinnar umtalsvert og það þýddi að bæjar- og sveitarstjórnarfulltrúum Samfylkingarinnar fjölgaði heilt yfir á landsvísu. Margir nýir fulltrúar náðu kjöri í vor og stjórn sveitarstjórnarráðs hlakkar til þess að vinna með nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum og öðrum á kjörtímabilinu. Staða Samfylkingarinnar á sveitarstjórnarstiginu er sterk um allt land núna og stjórn sveitarstjórnarráðs ætlar að byggja á því til þess að styrkja stöðu okkar enn frekar á kjörtímabilinu og í næstu kosningum.